MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ NÝJAST 15:17

Kristján: Það vantaði nýja rödd

SPORT

Allsherjarnefnd fundar um ofbeldismál: Hæstiréttur gerði mistök

Vísir Innlent 14. febrúar 2013 13:38
Andrea Unnarsdóttir fékk þyngsta dóminn í umræddu sakamáli.
Andrea Unnarsdóttir fékk þyngsta dóminn í umræddu sakamáli.

Hæstiréttur gerði mistök þegar hann komst að þeirri niðurstöðu í dómi að það hefði ekki verið kynferðisbrot þegar karlmaður stakk fingri í endaþarm og leggöng konu og klemmdi. Þetta segir Björgvin G. Sigurðsson, formaður Allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis. Nefndin fundaði um dóminn í morgun.

Málið tengist árás konu og þriggja karlmanna á konu í Hafnarfirði fyrir jólin 2011. Hin dæmdu hafa öll verið bendluð við vélhjólasamtökin Vítisengla. Sú sem fékk þyngsta dóminn, Andrea Kristín Unnarsdóttir, var dæmd í fimm og hálfs árs fangelsi og rétt er að taka fram að þrátt fyrir niðurstöðu sína þyngdi Hæstiréttur þá refsingu sem Héraðsdómur Reykjaness hafði dæmt fólkið til að sæta. Forsendan fyrir niðurstöðu Hæstaréttar var sú að ætlun brotamannsins hafi verið sú að meiða þolandann og því hafi ekki verið um kynferðisbrot að ræða.

Ragnheiður Bragadóttir, prófessor í lögfræði við Háskóla Íslands, mætti á fund allsherjarnefndar í morgun til að ræða dóminn. Björgvin sagði að það hefði verið ein meginniðurstaða fundarins að löggjöfin hafi verið í lagi. Dómurinn hefði einfaldlega gert mistök. „Dómurinn sætti svo vægt sé til orða tekið mikilli undrun og furðu. Og þegar maður fer yfir hann er maður agndofa af undrun," segir Björgvin G. Sigurðsson um málið.

„Þó að þingmenn séu ekkert áfjáðir í það að vera að gagnrýna niðurstöðu dómsvaldsins, þá verður maður stundum að gera það. Og ég held að harkaleg viðbrögð úr öllum áttum hafi verið mjög réttmæt og eðlileg við þessum undarlega dómi. En um leið var það ágætt að fá það fram með afdráttarlausum hætti að það er ekkert í lagaumhverfinu sem við þurfum að bregðast við," sagði Björgvin. Hann bætti því við að þingmenn þyrftu frekar að halda áfram að fylgjast með framkvæmd dómanna.


Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Innlent 19. júní 2013 14:41

Tölvuþrjótar reyna að blekkja viðskiptavini

Nokkrir viðskiptavinir Íslandsbanka hafa í morgun fengið póst þar sem þeir eru beðnir um að staðfesta notendaupplýsingar með því að tengjast netbankanum í gegnum vefslóð sem gefin er upp í póstinum. Meira
Innlent 19. júní 2013 14:18

TF-LÍF hjálpar TF-TAL

Þyrla Landhelgisgæslunnar var fengin til að aðstoða við flutning flugvélarinnar sem Ómar Ragnarsson brotlenti við Sultartangalón í fyrradag. Meira
Innlent 19. júní 2013 13:49

"Það nota allir kynlíf í auglýsingum"

Hörður Sveinsson ljósmyndari og grafískur hönnuður segir kynlíf koma fyrir mjög víða í auglýsingum. Meira
Innlent 19. júní 2013 14:03

Kvikmyndagerð á Íslandi fékk Bleiku steinana

Kvikmyndagerð á Íslandi hlaut í dag Bleiku steinana, hvatningarverðlaun Femínistafélags Íslands. Meira
Innlent 19. júní 2013 13:34

Svavar Halldórsson kærir íslenska ríkið

Svavar Halldórsson, fyrrverandi fréttamaður, og Ríkisútvarpið hafa kært dóm Hæstaréttar sem féll í nóvember síðastliðnum til Mannréttindadómstóls Evrópu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá RÚV. Meira
Innlent 19. júní 2013 13:31

Nýtt verðþak tekur gildi 1. júlí

Um næstu mánaðamót lækkar verð á notkun farsíma og netlykla milli landa innan Evrópu samkvæmt reglugerð ESB. Hér tekur reglugerðin gildi í gegn um EES samninginn og íslenskir neytendur njóta góðs af. Meira
Innlent 19. júní 2013 12:51

Hundurinn Lúkas snýr aftur

Leikfélagið Norðurbandalagið mun á föstudaginn frumsýna leikrit sem byggt er á stóra Lúkasarmálinu. Verkið verður frumsýnt í Rýminu á Akureyri á föstudaginn. Meira
Innlent 19. júní 2013 12:55

Hæstiréttur snýr nauðgunardómi í sýknu

Stefán Logi Sívarsson og Þorsteinn Birgisson hafa verið sýknaðir af ákæru um að hafa nauðgað átján ára stúlku. Hæstiréttur gagnrýnir niðurstöðu héraðsdóms og annmarka á rannsókn lögreglu. Einn dómari ... Meira
Innlent 19. júní 2013 12:04

Enn mikil vinna eftir

Í dag eru níutíu og átta ár frá því að konur, sem voru orðnar 40 ára og eldri, fengu kosningarétt til Alþingis. Enn er mikil vinna eftir í jafnréttismálum, segir framkvæmdastýra Jafnréttisstofu. Meira
Innlent 19. júní 2013 12:00

Lög um lögheimili verði endurskoðuð

Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra segir tímabært að endurskoða lög um lögheimili. Meira
Innlent 19. júní 2013 12:00

Innanríkisráðherra segir að eitt skuli yfir alla ganga

Hanna Birna segir ekkert því til fyrirstöðu að veita Kristni Hrafnssyni frekari upplýsingar Meira
Innlent 19. júní 2013 11:57

Fólk skilur til að fá hærri barnabætur

Séra Vigfús Þór Árnason, sóknarprestur í Grafarvogskirkju, segir löggjöf í kringum hjónabönd ófullkomna og að breytinga sé þörf svo fólk sjái hag sinn í því að vera gift. Meira
Innlent 19. júní 2013 11:44

Veist þú hver þetta er?

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi myndum vegna máls sem hún hefur til rannsóknar. Meira
Innlent 19. júní 2013 11:09

Engar reglur til um hversu margar undirskriftir þarf

Undirskriftasöfnun gegn frumvarpi um lækkun veiðigjalda hefur farið hratt af stað, svo hratt að vart finnast þess dæmi. Meira
Innlent 19. júní 2013 11:07

Silfur Egils hættir á RÚV

"Þetta eru blendnar tilfinningar en ég held að þetta sé rétt. Ég hef alltaf fylgt hugboðum mínum í þessum efnum,“ segir Egill Helgason sjónvarpsmaður, en þáttur hans Silfur Egils verður ekki á d... Meira
Innlent 19. júní 2013 09:00

4.126 hjón hafa slitið samvistir

Hjónum sem slitið hafa samvistir á pappírum hefur fjölgað um fjórðung síðan eftir hrun. Giftum hjónum hefur fjölgað um 2,5 prósent. Búferlaflutningar maka sennilegasta skýringin, en gift hjón verða að... Meira
Innlent 19. júní 2013 08:24

Ólafur Ragnar Grímsson: Fá mál betur til þess fallin að setja í þjóðaratkvæðagreiðslu

Um fimmtán þúsund manns hafa skrifað undir áskorun til Alþingis um að samþykkja ekki breytingar á lögum um veiðigjöld. Meira
Innlent 19. júní 2013 08:00

Öskjuhlíðin nýtt sem Sorpa

Gamalt sófasett, dauð kanína sem hafði verið hengd á trjágrein og sorp af ýmsu tagi blasti við vegfarendum í Öskjuhlíðinni í gær. Meira
Innlent 19. júní 2013 08:00

Stærsta útilistaverk landsins rís á Raufarhöfn

Heimskautsgerðið, útilistaverkið á Melrakkaási við Raufarhöfn, er farið að taka á sig mynd og tugir ferðamanna koma á hverjum degi til þess að berja verkið augum. Meira
Innlent 19. júní 2013 08:00

Norðurland á topp tíu lista Lonely Planet

Norðurland er á topp tíu lista Lonely Planet yfir áfangastaði í Evrópu fyrir árið 2013. Meira
Innlent 19. júní 2013 07:39

Tölvum stolið

Skömmu fyrir miðnætti í nótt var lögreglu á höfuðborgarsvæðinu tilkynnt um innbrot og þjófnað í fyrirtæki í austurborginni. Meira
Innlent 19. júní 2013 07:00

Kaupendur fyrstu íbúðar á fertugsaldri

Aldur þeirra sem kaupa sína fyrstu íbúð hefur hækkað á síðustu árum. Hækkun íbúðaverðs er helsta ástæðan. Húsaleiga hefur hækkað og ungt fólk býr lengur heima. Meira
Innlent 19. júní 2013 07:00

Selja hugbúnaðinn til tólf landa

Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Meniga hefur selt heimilisfjármálahugbúnað sinn til tólf landa, nú síðast til Póllands. Þannig bættust í hópinn um það bil þrjár milljónir nýrra notenda. Meira
Innlent 19. júní 2013 07:00

Fasteignamat Hörpu sagt vera fráleitt

Tekist var á um það í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær hvort dómkvaddir matsmenn ættu að leggja mat á markaðsvirði Hörpu. Deilt er um úrskurð yfirfasteignamatsnefndar. Fasteignamatið er 22 milljaðar. Meira
Innlent 18. júní 2013 22:02

Ellefu þúsund skrifað undir

Alls hafa ellefu þúsund manns skrifað undir áskorun til Alþingis um að samþykkja ekki frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytingar á lögum um veiðigjöld. Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Fréttir / Innlent / Allsherjarnefnd fundar um ofbeldismál: Hæstiréttur gerði mistök
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000