Handbolti

Alfreð og félagar í Kiel með góðan sigur í Meistaradeildinni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Alfreð Gíslason þjálfar lið Kiel.
Alfreð Gíslason þjálfar lið Kiel. vísir/getty
Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Kiel unnu fínan sigur, 32-29, á Kadetten Schaffhausen í Meistaradeild Evrópu. Leikurinn fór fram á heimavelli Kiel í Þýskalandi.

Staðan var 19-15 í hálfleik og náðu heimamenn ávallt að halda gestunum þægilega frá sér.

Domagoj Duvnjak var atkvæðamestur í liði Kiel en hann skoraði sex mörk og það úr átta skotum. Gabor Csaszar og Luka Maros voru báðir með átta mörk fyrir Kadetten Schaffhausen í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×