Handbolti

Alfreð og Aron til Kölnar fimmta árið í röð en í fyrsta sinn sem mótherjar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Aron og Alfreð unnu Meistaradeildina saman í tvígang.
Aron og Alfreð unnu Meistaradeildina saman í tvígang. vísir/getty
Alfreð Gíslason og Aron Pálmarsson hafa verið fastagestir á Final Four helginni í Meistaradeild Evrópu handbolta undanfarin ár og það verður engin breytingar á því í ár.

Í gær tryggðu bæði Kiel og Veszprém sér farseðilinn til Kölnar þar sem úrslitahelgi Meistaradeildarinnar hefur farið fram frá árinu 2010.

Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Kiel komust áfram þrátt fyrir þriggja marka tap, 33-30, fyrir Barcelona í seinni leiknum á útivelli. Kiel vann fyrri leikinn 29-24 og einvígið samanlagt 59-57.

Aron og félagar í Veszprém gerðu 30-30 jafntefli við Vardar í gær eftir að hafa unnið fyrri leikinn í Makedóníu 26-29.

Alfreð og Aron verða því á sínum stað í Köln síðustu helgina í maí en öfugt við síðustu fjögur ár verða þeir mótherjar en ekki samherjar í ár.

Alfreð fékk Aron til Kiel sumarið 2009 og strax á þeirra fyrsta tímabili saman varð Kiel Evrópumeistari eftir tveggja marka sigur, 36-34, á Barcelona í úrslitaleik í Lanxess Arena í Köln. Tímabilið 2009-10 var það fyrsta með Final Four fyrirkomulaginu í Meistaradeildinni en áður voru leiknir tveir úrslitaleikir, heima og að heiman.

Árið eftir hefndu Börsungar fyrir tapið í úrslitaleiknum og slógu Kiel úr leik í 8-liða úrslitunum. Vorið 2012 fóru lærisveinar Alfreðs hins vegar alla leið og urðu Evrópumeistarar í annað skiptið á þremur árum eftir sigur á Atlético Madrid í úrslitaleiknum, 26-21. Aron skoraði þrjú mörk í leiknum.

Alfreð og Aron komust einnig til Kölnar 2013, 2014 og 2015 en tókst ekki að bæta þriðja Evrópumeistaratitlinum í safnið. Kiel komst í úrslitaleikinn 2014 þar sem liðið tapaði 30-28 fyrir Flensburg. Aron spilaði frábærlega í leikjunum tveimur í Köln og var valinn besti leikmaður Final Four helgarinnar það árið.

Leiðir Alfreðs og Arons skildu svo í sumar þegar sá síðarnefndi gekk til liðs við ungverska stórliðið Veszprém.

Kiel og Veszprém mættust tvisvar í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í ár og gætu mæst í þriðja skiptið í Köln eftir mánuð.

Pólska meistararaliðið Kielce er einnig komið áfram í undanúrslitin og það ræðst síðar í dag hvort fjórða liðið verður Paris-Saint Germain eða Zagreb.

Alfreð og Aron í Final Four frá 2012:

2012:

Kiel verður meistari eftir 26-21 sigur á Atlético Madrid í úrslitaleik.

2013:

Kiel endar í 4. sæti eftir töp fyrir Hamburg og Kielce.

2014:

Kiel endar í 2. sæti eftir tap fyrir Flensburg í úrslitaleik.

2015:

Kiel endar í 4. sæti eftir töp fyrir Veszprém og Kielce.

2016:

Kiel og Veszprém eru bæði komin í undanúrslit.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×