Aldrei eins mikið stress 29. nóvember 2006 18:30 Friðrik gefur út tvær plötur fyrir þessi jól. MYND/Heiða
Gítarleikarinn Friðrik Karlsson sendir frá sér tvær plötur fyrir þessi jól. Annars vegar slökunarplötuna Móðir og barn og hins vegar Álfa og fjöll með Þórunni Lárusdóttur. Friðrik hefur verið duglegur við útgáfu slökunarplatna og er Móðir og barn sú tíunda í röðinni sem er gefin út hér á landi. „Ég er alltaf að fá tölvupóst frá konum sem hafa verið að þakka mér fyrir. Þær eru búnar að nota tónlistina mína í meðgöngu, við fæðingu og eftir fæðingu. Þá datt mér í hug að fara alla leið með það konsept og gera einn svona disk, annars vegar fyrir móðurina til að slaka á og hins vegar fyrir barnið. Þar eru þetta vögguvísur sem eru útsettar í rólegum stíl,“ segir Friðrik. Þau lög syngur Sesselja Magnúsdóttir en ekkert er sungið á hinni plötunni.Glötuð jógatónlistFriðrik byrjaði að semja slökunartónlist eftir að hann fór að læra jóga fyrir mörgum árum. „Mér fannst músíkin sem var spiluð þar alveg glötuð þannig að ég samdi einn disk fyrir sjálfan mig til að gera mitt jóga við. Síðan var einhver sem heyrði þetta og þannig byrjaði það,“ segir hann og játar að svona tónlist sé mjög góð við stressi. „Það hefur aldrei verið eins mikið stress í samfélaginu hvar sem er. Það gerist allt orðið svo hratt.“ Forvitinn dávaldurFriðrik er mikill áhugamaður um mannrækt og hefur til dæmis meistararéttindi í NPL, dáleiðslu, Time Line Therapy og annað stig í Reiki-heilun. Einnig hefur hann lagt stund á indversk Ayurveda-fræði, Kapalah og forn-vísindi Huna frá Hawaii. Hann segir að forvitni hafi rekið hann áfram í þessu námi sínu. Einnig hafi hann viljað tengjast slökunartónlistinni betur með þessum hætti. „Ég er svo mikið að selja þessa músík til alls konar þerapista. Ég er búinn að læra þessar aðferðir líka þannig að ég veit hvernig músíkin þarf að vera til að hún henti þeim.“ Keltneskar útsetningarÖnnur plata frá Friðriki kemur út fyrir þessi jól, sem nefnist Álfar og fjöll. Friðrik sér um útsetningar og hljóðfæraleik að mestu og Þórunn Lárusdóttir um sönginn. Á plötunni syngur Þórunn ýmis íslensk lög, gömul og ný, en lögin eru útsett í eins konar léttum keltneskum stíl. Lögin eru flestum Íslendingum kunn og má þar nefna Ísland er land þitt, Sofðu unga ástin mín og Hvert örstutt spor. Auk þess eru á plötunni þrjú lög sem Friðrik Karlsson samdi við texta Þórunnar annars vegar og við texta Ingibjargar Gunnarsdóttur hins vegar. „Það hafði aldrei verið gert neitt svoleiðis áður. Þessi íslensku lög henta svo vel í þessum stíl,“ segir Friðrik, sem er að spá í að gera aðra plötu í þessum dúr.freyr@frettabladid.is
Menning Mest lesið Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Lífið Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Lífið Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Lífið samstarf David Hockney er látinn Menning Fleiri fréttir „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Sjá meira