Handbolti

Álaborg með enn einn sigur

Smári Jökull Jónsson skrifar
Aron Kristjánsson og félagar í Álaborg eru með fullt hús stiga í dönsku úrvalsdeildinni.
Aron Kristjánsson og félagar í Álaborg eru með fullt hús stiga í dönsku úrvalsdeildinni. vísir/getty
Íslendingaliðið í Álaborg í Danmörku vann heimasigur gegn GOG í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag.

Álaborg hefur farið vel af stað í deildinni og fyrir umferðina sátu þeir á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eftir fimm umferðir. Arnór Atlason og Stefán Rafn Sigurmannsson leika með liðinu en þeir gengu báðir til liðs við liðið í sumar auk þess sem Aron Kristjánsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari, er við stjórnvölinn.

Arnór skoraði eitt mark í 25-22 sigri og liðið heldur því toppsætinu og hefur unnið alla sína leiki til þessa.  Stefán Rafn komst ekki á blað í leiknum í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×