Lífið

Ágústspá Siggu Kling – Steingeit: Treystu því að allt gangi vel

Elsku merkilega Steingeitin mín! Woody Allen sagði einu sinni að 70% af öllum árangri væru einfaldlega fólgin í því að mæta á staðinn.

Það er svolítið sem þú þarft að hafa í huga í næsta mánuði. Gera þig sýnilegri, nýta tengslanetið í kringum þig, stækka það og alls ekki vera að hafa móral yfir einu né neinu. Það er bara alveg hundleiðinlegt!

Þú tekur þá ákvörðun að vera í vinningsliðinu sama hvað það kostar. Ágúst er kannski ekki mánuðurinn sem mun breyta öllu hjá þér en hann mun samt sem áður marka upphafið að nýjum hugsunum og krafti sem mun nýtast þér þegar lengra líður á árið. Það er upphafið að breytingum og einhvers staðar verða breytingar að hefjast.

Stundum er manni gefið tímabil þar sem að þarf bara að treysta því að allt muni gangi vel. Þá slakar þú á og útkoman verður ennþá betri.

Ástamálin gætu verið eitthvað örlítið flókin núna, en svoleiðis er það bara. Þetta er allt undir þér komið og þú ræður hvað þú gerir.

Það er nefnilega enginn annar sem mun gera þær breytingar fyrir þig. Þú hefur orðið fyrir vonbrigðum með ýmislegt í kringum þig en nákvæmlega þessi vonbrigði eiga eftir að færa þér bjartsýni og opna augu þín fyrir nýjum möguleikum.

Þú þarft að vera hreinskilin og tala beint frá hjartanu þínu. Ekki vera að skipuleggja þig of mikið og setja hlutina í Excel, það hentar þér ekki þessa dagana.

Ég ætla líka alveg svoleiðis að harðbanna þér að vera eitthvað að draga þig í hlé. Það ætti að vera búið að skrifa sérstök lög um það frá ríkisstjórninni og það er bara eitthvað sem þið Steingeiturnar megið ekki gera núna. Ég banna það.

Það er svo mikilvægt að daðra við lífið og alla í kringum þig, þú hefur svo mikla útgeislun þegar þú ert í stuði til þess að daðra! Þú munt vita alveg nákvæmlega hvernig þú færð þínu framgengt og að upphafið að betra tímabili er í september.

Til hamingju með þetta allt saman, elskan mín, lífið er gott!

Þín Sigga Kling

Frægar Steingeitur: Guðjón Pétur Lýðsson markakóngur, Svava Johansen í Sautján, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, dr. Kristín Ólafsdóttir, Jón Gnarr, Elvis Presley, Gunnar Þórðarson, Tómas Guðbjartsson læknahetja, Lovísa Tómas, Dorrit Moussaieff forsetafrú, Þuríður Blær Jóhannsdóttir, leikkona og Reykjavíkurdóttir, Jesús og Simmi á Fabrikkunni.


Tengdar fréttir

Ágústspá Siggu Kling – Vog: Vekur athygli þegar haustar

Elsku hjartans dásemdar Vogin mín. Þú hefur klifið mörg fjöll og sum þeirra hafa verið mjög brött og erfið. En það er nú bara þannig að þegar þú ert komin upp á topp þá ertu ánægð og litlir sigrar verða að stórum þegar þú safnar þeim saman.

Ágústspá Siggu Kling – Fiskur: Allt í lagi að vera óþekkur!

Elsku ótrúlega fallegi Fiskurinn minn. Ef þú hefur einhverjar áhyggjur af því að þú getir ekki gert það sem þig langar til að gera þá þarft þú að spá í það að vilja það sem þú getur gert. Þetta er oft spurning um hugarfar.

Ágústspá Siggu Kling – Vatnsberi: Fyllist af krafti

Elsku hjartans Vatnsberinn minn. Ágúst verður miklu skemmtilegri mánuður en þú hefur þorað að vona. Það er eins og það sem þú ert búinn að ákveða að gangi upp muni bara gera einmitt það og þú verður svo dásamlega ánægður!

Ágústspá Siggu Kling komin á Vísi!

Stjörnuspár Sigríðar Klingenberg spámiðils hafa notið gríðarlega vinsælda undanfarin ár. Mánaðarlega spáir hún fyrir lesendum Vísis og Fréttablaðsins, í formi texta og myndbands, en spár hennar fyrir ágústmánuð má sjá hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×