Lífið

Ágústspá Siggu Kling – Bogmaður: Settu súrefnisgrímuna fyrst á þig

Elsku hjartans fallegi Bogmaður! Ég skrifaði einhvern tíma í stjörnuspá að ef ég myndi ná mér í maka þá myndi ég velja mér í Bogmann. Eitt kvöld var ég á leiðinni heim úr veislu þegar allt í einu stökk maður inn í leigubílinn og sagði: „Ég er Bogmaður Sigga!“ Ég vissi ekkert hvað hann var að fara með þetta enda búin að steingleyma því að hafa skrifað þetta! Það gerðist nú ekkert meira en þetta því ég vísaði honum í annan leigubíl, alltaf er ég jafn vitlaus.

En málið er að það eru svo margir hugfangnir af þér. Það er svo gott að vinna með þér, þú ert þægilega og duglega týpan. Það fíla það allir. Þú ert líka alltaf fyrstur til þess að hressa fólk við en meðvirknin getur haldið þér niðri. Meðvirkni skapar áhyggjur og ótta. Áhyggjur og ótti hafa ekki góð áhrif á neinn.

Þú þarft að treysta því að fólkið í kringum þig geti í raun og veru bjargað sér sjálft. Mundu, elsku Bogmaðurinn minn, að þú þarft fyrst að setja á þig súrefnisgrímuna áður en þú setur súrefnisgrímu á fólkið í kringum þig. Þú gerir ekki mikið gagn meðvitundarlaus!

Þú kannast sjálfsagt við þessar leiðbeiningar frá því að hafa farið í flug og það er svo sannarlega sannleikur í þeim.

Þú munt sýna mikið umburðarlyndi á næstunni og það mun skapa frið í kringum þig. Það er ekkert nema umburðarlyndi sem mun hjálpa þér að skapa frið í kringum þig.

Þú ert ekki að gera misheppnaða tilraun heldur er bara búinn að vera smá krókur á leið þinni til sigurs. Þreyta þín stafar einungis af hugsunum þínum um liðna atburði. Maður getur nefnilega orðið alveg dauðþreyttur af því að hugsa!

Ekki vera of viðkvæmur og ekki láta mislyndi hindra þig í að taka fullan þátt í þessum fallega degi. Þitt skemmtilega ímyndunarafl mun koma þér til góða, sérstaklega í sambandi við ástina. Þú þarft ekkert að spá í það hvað ást er sérstaklega. Ef þér líður dásamlega vel og þú hefur engar áhyggjur þá ert þú ástfanginn. En ef þér líður eins og þú sért bundinn niður og getir ekki hreyft þig þá verður þú að finna einhverja leið til þess að sleppa. Þannig á manni ekki að líða.

Þú fæddist með þann eiginleika að reyna að sjá það jákvæða í öllu og það er einmitt sá eiginleiki sem á eftir að koma þér þangað sem þú vilt fara. Það eru margir sem eiga eftir að vilja stjórna þér á næstu mánuðum en þú verður að skilja að í þér býr leiðtogi sem getur ekki látið stjórna sér endalaust.

Hlaðborð framtíðarinnar er yfirfullt af alls konar kræsingum og það er nauðsynlegt fyrir þig að smakka á þeim réttum sem þú hefur ekki smakkað á áður. Lífið er svo margbreytilegt og yndislegt, elsku Bogmaðurinn minn!

Þín Sigga Kling

Frægir Bogmenn: Ingvar E. Sigurðsson leikari, Björgvin Franz Gíslason leikari, Edda Heiðrún Backman leikkona, Regína Ósk Óskarsdóttir söngkona, Sigrún í Gyðja Collection, Steindi, Bryndís Ásmundsdóttir, leik- og söngkona, Jóhanna Vilhjálmsdóttir, fjallkona og leikkona, Logi Bergmann Eiðsson sjónvarpsmaður, Jói á Fabrikkunni, Sigga Dögg kynfræðingur, Hemmi, hársnillingur á Módus, Lovísa, hönnuður hjá Kjólar og konfekt.


Tengdar fréttir

Ágústspá Siggu Kling – Vog: Vekur athygli þegar haustar

Elsku hjartans dásemdar Vogin mín. Þú hefur klifið mörg fjöll og sum þeirra hafa verið mjög brött og erfið. En það er nú bara þannig að þegar þú ert komin upp á topp þá ertu ánægð og litlir sigrar verða að stórum þegar þú safnar þeim saman.

Ágústspá Siggu Kling – Fiskur: Allt í lagi að vera óþekkur!

Elsku ótrúlega fallegi Fiskurinn minn. Ef þú hefur einhverjar áhyggjur af því að þú getir ekki gert það sem þig langar til að gera þá þarft þú að spá í það að vilja það sem þú getur gert. Þetta er oft spurning um hugarfar.

Ágústspá Siggu Kling – Vatnsberi: Fyllist af krafti

Elsku hjartans Vatnsberinn minn. Ágúst verður miklu skemmtilegri mánuður en þú hefur þorað að vona. Það er eins og það sem þú ert búinn að ákveða að gangi upp muni bara gera einmitt það og þú verður svo dásamlega ánægður!

Ágústspá Siggu Kling komin á Vísi!

Stjörnuspár Sigríðar Klingenberg spámiðils hafa notið gríðarlega vinsælda undanfarin ár. Mánaðarlega spáir hún fyrir lesendum Vísis og Fréttablaðsins, í formi texta og myndbands, en spár hennar fyrir ágústmánuð má sjá hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×