Enski boltinn

Agüero slátraði Newcastle á tuttugu mínútum

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Sergio Agüero setti fimm mörk á Newcastle á aðeins 20 mínútum í 6-1 sigri Manchester City í dag. Eftir að Newcastle komst óvænt yfir einfaldlega völtuðu leikmenn Manchester City yfir gestina á Etihad-vellinum.

Aleksandar Mitrović kom Newcastle óvænt yfir um miðbik fyrri hálfleiks með fyrsta marki sínu í treyju Newcastle en Agüero tókst að jafna metin skömmu fyrir lok fyrri hálfleiks með góðu skallamarki.

Á fyrsta korterinu í seinni hálfleik gerðu leikmenn Manchester City einfaldlega út um leikinn. Agüero setti fjögur mörk í öllum regnbogans litum og Kevin De Bruyne eitt og var staðan 6-1 fyrir Manchester City tuttugu mínútum eftir að Agüero jafnaði metin.

Eftir það féll allur kraftur úr leiknum og vann Manchester City að lokum sannfærandi sigur. Agüero virðist vera kominn í stand á ný en hann hafði aðeins skorað eitt mark í ensku úrvalsdeildinni fram að leik dagsins.

Aguero fullkomnar þrennuna De Bruyne bætir við marki: Agüero setur fjórða mark sitt og fimmta mark Manchester City Öll fimm mörk Agüero í leiknum:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×