Viðskipti innlent

Áframhaldandi fiskvinnsla á Djúpavogi

Stefán Árni Pálsson skrifar
MYND/SKÚLI ANDRÉSSON
Fiskvinnsla hefst á Djúpavogi undir merkjum Búlandstinds um næstu áramót. Vísir hf. hefur selt fyrirtæki á staðnum, Ósnesi, hlutafé sitt í Búlandstindi á 500 þúsund krónur.

Vísir mun afhenda Búlandstindi fasteignir sínar á Djúpavogi, sem metnar eru á 50 milljónir króna, án endurgjalds, verði stöðug vinnsla í húsunum næstu fimm ár. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vísi.

Engin starfsemi hefur verið undir nafni Búlandstinds síðustu ár en Ósnes og Fiskeldi Austfjarða hf. hafa skuldbundið sig til þess að auka hlutafé Búlandstinds um samtals 140 milljónir króna og hefja þar fiskvinnslu, auk vinnslu og pökkunar á eldisfiski.

Ósnes kaupir tæki og búnað Vísis á staðnum og leggur inn sem hlutafé í Búlandstind og hlutafé Fiskeldis Austfjarða verður í formi tækjabúnaðar til vinnslu og pökkunar á eldisfiski.

„Með þessum samningum og afhendingu fasteigna sinna án greiðslu að uppfylltu skilyrði um vinnslu næstu ár, vill Vísir gera sitt til að tryggja áframhaldandi fiskvinnslu á Djúpavogi eftir að fyrirtækið flytur starfsemi sína þaðan til Grindavíkur um næstu áramót. Gert er ráð fyrir um 30 störfum hjá Búlandstindi við almenna fiskvinnslu og slátrun, vinnslu og pökkun á eldisfiski,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×