Skoðun

Aflaheimildir til eins fyrirtækis í Færeyjum

Hallveig Ólafsdóttir og Karen Kjartansdóttir skrifar
Færeyingar hafa hleypt af stokkunum tilraun með því að halda uppboð á mjög takmörkuðum hluta aflaheimilda sinna. Alls ekki er um það að ræða að allar aflaheimildir séu boðnar upp. Það verður áhugavert að sjá hvað kemur út úr þessari tilraun hjá frændum okkar Færeyingum, en fyrstu fregnir gefa tilefni til að velta upp ýmsum spurningum.

Færeyingar buðu t.d. upp 1.200 tonn af þorskkvóta í Barentshafi, ekki í færeyskri landhelgi. Aðeins tvö fyrirtæki sáu sér fært að taka þátt í uppboðinu að þessu sinni og niðurstaðan varð sú að annað þeirra, JFK Trol, fékk aflaheimildirnar. Það gerði fyrirtækið í krafti stærðar sinnar og situr nú eitt að öllum kvótanum sem var boðinn upp næsta árið.

Þessi niðurstaða, að allar umræddar heimildir hafi endað hjá einu fyrirtæki í eitt ár, vekur ýmsar spurningar um kosti uppboðsleiðar. Á Íslandi er frjáls markaður með aflaheimildir. Innbyggt í íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið með tryggum fiskveiðiréttindum er langtímahugsun í umhverfismálum tryggð, fyrirtæki geta skipulagt rekstur sinn og fjárfestingar til lengri tíma. Við þetta fyrirkomulag hafa byggst upp öflug og framsækin sjávarútvegsfyrirtæki um allt land sem veita þúsundum manna vinnu.

Færeyingar ætla líka að bjóða upp 9.000 tonn af makrílkvóta. Á Íslandi er úthlutað 152.000 tonnum af makríl og fá 320 skip úthlutaðar aflaheimildir. Að baki þessum 320 skipum eru um 200 fyrirtæki á um 60 stöðum víðsvegar um landið.

Á uppboði myndi líklegast fækka verulega í þessum hópi. Ekki er ólíklegt að einmitt smábátar og skip minni útgerða yrðu undir í slíku uppboði. Má því einnig velta því fyrir sér hvaða áhrif þessi leið hefur á starfsöryggi fólks.

Það er mikilvægt að skoða í þaula hvaða áhrif uppboðsleið myndi hafa, áður en nokkrar ákvarðanir eru teknar um að bylta því kerfi sem við höfum komið upp. Kerfi sem hefur vakið athygli um allan heim vegna þess hve miklu það skilar samfélaginu – því mesta sem gerist í heiminum miðað við greiningar OECD, um leið og það miðar að sjálfbærri og ábyrgri nýtingu auðlindarinnar.




Skoðun

Sjá meira


×