Erlent

Ætla að hrekja Íslamska ríkið frá Mosúl

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Kúrdar komnir í skotgrafirnar skammt frá bænum Besheqa.
Kúrdar komnir í skotgrafirnar skammt frá bænum Besheqa. vísir/epa
„Frá okkar sjónarhóli séð er vernd almennra borgara það mikilvægasta í þessari hernaðaraðgerð,“ sagði Filippo Grandi, flóttamannafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, á blaðamannafundi í Bagdad í gær þegar stórsókn hófst gegn vígasveitum Íslamska ríkisins í Mosúl í fyrrinótt.

Íraski stjórnarherinn, Kúrdaherinn Peshmerga, tyrkneski stjórnarherinn og hersveitir Kúrdasamtakanna PKK taka þar höndum saman ásamt fjölþjóðaliði undir stjórn Bandaríkjamanna og segjast vissir um að sigur vinnist á næstu vikum eða mánuðum.

Íslamska ríkið, eða Daish-samtökin, náðu Mosúl á sitt vald í júní árið 2014 og hefur haldið þar uppi ógnarstjórn, rétt eins og víðar í Írak og Sýrlandi þar sem samtökin hafa náð nokkuð stóru svæði á sitt vald.

Hjálparsamtök vara við því að almenningur í borginni og næsta nágrenni verði í stórhættu. Þar býr um ein og hálf milljón manna. Búast megi við að allt að 700 þúsund þeirra þurfi að flýja að heiman og leita á náðir hjálparstofnana. Nauðsynlegt sé að vera vel undir það búinn, ekki síst vegna þess að nú er vetur að ganga í garð.

Nú þegar hafa um 3,3 milljónir manna hrakist frá heimilum sínum í Írak vegna borgarastyrjaldarinnar þar. Þetta er næstum því tíundi hver íbúi landsins.

Þúsundir Kúrda í Peshmerga-hersveitunum hófu sóknina í gær norðaustan við Mosúl.

Haider al-Abadi, forsætisráðherra Íraks, skýrði frá þessu í sjónvarpsávarpi til þjóðarinnar. Hann sagðist bjartsýnn.

„Íraski fáninn verður dreginn að húni í miðri Mosúlborg og í hverju einasta þorpi og hverju horni mjög fljótlega,“ sagði hann.

Ashton B. Carter, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði sóknina marka mikilvæg tímamót í baráttunni gegn Íslamska ríkinu.

Stefnt er að því að innrásarliðið umkringi borgina fyrst, bæði til að einangra hana og til að koma í veg fyrir að liðsmönnum Íslamska ríkisins takist að flýja brott. Að því búnu verði haldið inn í borgina.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×