Innlent

647 milljónir til ferðamála: Sjáðu verkefnin sem hljóta styrk

Bjarki Ármannsson skrifar
Hæstu einstöku styrkirnir eru fjórir: Verkefni við Dynjanda, Geysi, Skaftafell og Dettifoss hlutu hvert um sig þrjátíu milljónir.
Hæstu einstöku styrkirnir eru fjórir: Verkefni við Dynjanda, Geysi, Skaftafell og Dettifoss hlutu hvert um sig þrjátíu milljónir. Vísir
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, hefur staðfest tillögu stjórnar Framvæmdasjóðs ferðamannastaða um úthlutun vorið 2016. Alls er 647 milljónum króna úthlutað til 66 verkefna hringinn í kringum landið.

Í viðhengi neðst í fréttinni má sjá lista yfir þau verkefni sem fengu styrki í ár. Hér má sjá styrkveitingarnar á gagnvirku Íslandskorti.

Hæstu einstöku styrkirnir eru fjórir: Verkefni við Dynjanda, Geysi, Skaftafell og Dettifoss hlutu hvert um sig þrjátíu milljónir.

51 milljón er úthlutað sérstaklega af ráðherra til brýnna verkefna vegna öryggis á ferðamannastöðum að tillögu Stjórnstöðvar ferðamála. Styrkir til einstakra verkefna nema þannig alls tæplega 596 milljónum.


Tengdar fréttir

Munurinn á útflutningstekjum af ferðaþjónustu og neyslu erlendra gesta

Í nýjum Vegvísi í ferðaþjónustu er áhersla lögð á áreiðanleg gögn og það að "markmið í ferðaþjónustu byggi á áreiðanlegum mælingum á núverandi stöðu“. Slík gögn eru m.a. svokallaðir ferðaþjónustureikningar, sem höfundar Vegvísisins vilja að gefnir verði út árlega.

Fyrstu hugmyndir Stjórnstöðvar ferðamála kynntar á vormánuðum

Tæplega 1,3 milljónir ferðamanna komu hingað til lands í gegnum Keflavíkurflugvöll á síðasta ári sem er um þrjátíu prósenta fjölgun frá árinu áður. Stefnt er að því að kynna fyrstu hugmyndir nýstofnaðrar Stjórnstöðvar ferðamála í vor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×