Viðskipti erlent

60 prósent Bandaríkjamanna gefa sjálfum sér jólagjöf

Sæunn Gísladóttir skrifar
Bandaríkjamenn eyða að meðaltali 17.500 krónum í jólagjöf handa sjálfum sér.
Bandaríkjamenn eyða að meðaltali 17.500 krónum í jólagjöf handa sjálfum sér. Vísir/Getty

Samkvæmt tölum frá National Retail Federation (NRF) gefa tæplega 60 prósent Bandaríkjamanna sjálfum sér jólagjöf. CNN Money greinir frá því að talan hafi nær tvöfaldast á síðustu tveimur árum.

Fólki finnst það eiga meiri pening til að eyða í sig sjálft í lok árs og eru ef til vill búnir að halda aftur af sér í innkaupum allt árið. Bandaríkjamenn hafa eytt minni pening á árinu en í fyrra, og hafa sparað meira, auk þess hefur verið á bensíni lækkkað og því hafa þeir meira á milli handanna í ár.

Verslanir hafa tekið eftir þessari þróun og eru farnar að velja vörur til að markaðssetja sérstaklega gagnvart þessum hópi.

Samkvæmt tölum frá NRF munu Bandaríkjamenn eyða í kringum 800 bandaríkjadölum, jafnvirði rúmlega 100 þúsund íslenskra króna í jólagjafir í ár. Þeir munu svo eyða 132 bandaríkjadölum, jafnvirði 17.500 íslenskra króna, í gjöf handa sjálfum sér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×