Erlent

547 látnir í Bangladesh

Mynd/AP
Tala látinna eftir að bygging hrundi í Bangladesh fyrir tíu dögum hækkar með hverjum deginum. Yfirvöld í landinu gáfu það út í morgun að minnsta kosti 547 hafi farist og er enn hundruða saknað. Í byggingunni var starfræk verksmiðja en hún var í mjög slæmu ásigkomulagi.

Nokkrir hafa verið handteknir, þar á meðal eigandi byggingarinnar, sem er sagður hafa skipað fólkinu að halda áfram að vinna stuttu áður en byggingin hrundi en þá hafði lögreglan skipað fólkinu að yfirgefa svæðið þar sem hún sá í hvað stefndi. Þúsundir hafa mótmælt bágbornu ástandi bygginga víða um landið síðustu daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×