Innlent

39 sækja um stöðu útvarpsstjóra

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Tíu af umsækjendunum 39.
Tíu af umsækjendunum 39.
39 aðilar hafa sótt um stöðu útvarpsstjóra. Þetta kemur fram á lista sem Vísi barst frá Ríkissjónvarpinu. Tveir leikhússtjórar, blikksmiður, tveir sölumenn, dagskrárgerðarmaður, húsasmíðameistari og bókavörður eru meðal þeirra sem sækja um.

Nokkrir þjóðþekktir einstaklingar eru á listanum. Ólína Þorvarðardóttir fyrrum þingkona, Stefán Jón Hafstein fyrrum þingmaður, Kolbrún Halldórsdóttir fyrrum þingkona og ráðherra, Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndagerðamaður, Edda Björgvinsdóttir leikkona, Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri og Ólafur Páll Gunnarsson dagskrárgerðarmaður á RÚV

Hér er listinn í heild sinni:

Árni Thoroddsen

Benedikt Sigurðarson, framkvæmdastjóri

Bjarni Guðmundsson, framkvæmdastjóri

Björn Þorláksson, ritstjóri og rithöfundur

Böðvar Ingi Aðalsteinsson, atvinnubílstjóri

Dana Rún Hákonardóttir, verkefnastjóri

Davíð Elvar Marinósson, ráðgjafi

Edda Björgvinsdóttir, leikari

Ester Sveinbjarnardóttir, verkefnastjóri

Filipe Carvalho, sölumaður

Fjölnir Már Baldursson, kvikmyndagerðamaður

Gauti Sigþórsson, lektor

Guðjón Pedersen, leikstjóri

Guðjón E. Hreinberg

Guðmundur Þór Sigurðsson

Gunnar Konráðsson, húsasmíðameistari

Hallur Guðmundsson, bókavörður

Helgi Þorsteinsson, framkvæmdastjóri

Hrafn Gunnlaugsson, kvikmyndaleikstjóri og rithöfundur

Hrannar Már Gunnarsson, BA lögfræði

Íris Alma Vilbergsdóttir, almannatengill

Jón Ólafsson, aðstoðarrektor

Ketill Gauti Árnason, nemi

Kolbrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri

Laufey Guðjónsdóttir, forstöðumaður

Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri

Magnús Sigurðsson, almannatengill í ferðaþjónustu

Maríanna Friðjónsdóttir, framkvæmdastjóri

Magnús Víðisson, sölumaður

Michael Jón Clarke, tónlistarmaður

Ólafur Páll Gunnarsson, dagskrárgerðarmaður

Ólína Þorvarðardóttir, doktor í íslenskum bókmenntum og þjóðfræði

Salvör Nordal, forstöðumaður

Sigurður Ásgeir Árnason, viðburðarstjóri

Stefán Jón Hafstein, sviðsstjóri

Sveinn Ívar Sigríksson, viðskiptafræðingur

Úlfhildur Dagsdóttir, bókmenntafræðingur

Víðir Benediktsson, blikksmiður og skipstjóri

Þorgils Björgvinsson, tónlistarmaður




Fleiri fréttir

Sjá meira


×