Viðskipti erlent

112 milljarða tap á Rio Tinto

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Þrátt fyrir mikið tap stendur vilji stjórnarinnar til að greiða út að lágmari 110 dollara á hlut í ár, eða jafnvirði 2 milljarða dollara.
Þrátt fyrir mikið tap stendur vilji stjórnarinnar til að greiða út að lágmari 110 dollara á hlut í ár, eða jafnvirði 2 milljarða dollara. Vísir/EPA
Rio Tinto, eitt stærsta námufyrirtæki heims, tapaði 866 milljónum dollara á síðasta ári, jafnvirði 112 milljarða króna. Fyrirtækið á og rekur álverið í Straumsvík, þar sem miklar deilur hafa staðið á milli starfsmanna og stjórnenda um launakjör undanfarið ár. 

Fyrirtækið skilaði 6,53 milljarða dollara hagnaði árið áður, 2014, eða jafnvirði 845 milljarða króna. 

Í ljósi breyttrar stöðu hefur stjórn fyrirtækisins ákveðið að endurskoða arðgreiðslustefnu félagsins, sem hefur verið að greiða út 215 dollara á hlut. Mun stjórnin framvegis fara yfir rekstur félagsins í lok hvers árs, meta framtíðarhorfur og ákveða arðgreiðslur út frá því. 

Breytingarnar munu þó ekki koma í veg fyrir að vilji stjórnarinnar stendur til að greiða út að lágmari 110 dollara á hlut í ár, eða jafnvirði 2 milljarða dollara.

Gengi bréfa í Rio Tinto féll um 7,8 prósent við fréttirnar í morgun.

Sam Walsh sagði í sagði í samtali við Bloomberg í morgun að fyrirtækið væri að koma úr stekri stöðu en nú hefði orðið mikil lækkun á hrávörumarkaði. Sagði hann að fyrirtækið væri í „forvirkum“ aðgerðum til að draga úr kostnaði. 

Walsh sagði að Rio Tinto hefði þó góða, sterka vaxtarmöguleika.

Mikill niðurskurður er á teikniborðinu og stefnir Rio Tinto á að skera niður um milljarð dollara í ár og á næsta ári. Þessi niðurskurður hefur þegar látið á sér kræla í álveri Rio Tinto hér á landi, í Straumsvík, þar sem launafrysting hefur tekið gildi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×