Viðskipti innlent

Magnús Barðdal nýr útibússtjóri á Sauðárkróki

Stefán Árni Pálsson skrifar
Magnús Barðdal Reynisson.
Magnús Barðdal Reynisson. mynd/arion banki
Magnús Barðdal Reynisson hefur tekið við starfi útibússtjóra Arion banka á Sauðárkróki.

Magnús er 29 ára að aldri, brautskráður með BSc próf í viðskiptalögfræði frá Háskólanum á Bifröst og með ML próf í lögfræði frá sama skóla. Hann hefur réttindi sem héraðsdómslögmaður og hefur starfað á lögfræðisviði Íbúðalánasjóðs frá árinu 2010.

Magnús er búsettur á Sauðárkróki, kvæntur Önnu Hlín Jónsdóttur, íþróttafræðingi og eiga þau tvö börn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×