Sport

„Líta allir á Sharapovu sem svindlara“

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar

Franska tenniskonan Kristina Mladenovic hefur ekki mikið álit á Maria Sharapovu miðað við ummæli sem birtust í breska blaðinu Le Parisien í dag.

Sharapova greindi frá því í síðustu viku að hún hefði fallið á lyfjaprófi og viðurkenndi um leið að það hefði verið vegna notkun hennar á meldóníum, lyfi sem var bætt á bannlista Alþjóðalyfjaeftirlitsins, WADA, um áramótin.

Sjá einnig: Hvað er meldóníum?

Sharapova hélt því fram að hún hefði notað meldóníum af heilsufarsástæðum og samkvæmt læknisráði undanfarinn áratug. Mladenovic gaf lítið fyrir þær skýringar.

„Það segja allir leikmenn [á atvinnumannatúrnum í tennis] að hún sé svindlari,“ sagði hún. „Maður efast um allt núna og hvort að hún eigi skilið allt það sem hún hefur unnið hingað til. Það er skelfilegt en það er gott að þetta er orðið opinbert.“

„Hvað mig varðar þá hef ég tífalt meiri áhyggjur ef ég fæ mér verkjalyf. Hún hefur verið að taka þessi lyf í tíu ár og þetta er alvöru lyf. Hún hefur leikið sér að reglunum og hugsað með sér að fyrst þetta er ekki bannað þá getur hún tekið þetta.“

Sjá einnig: Var Sharapova með kransæðasjúkdóm?

„Það þykja mér mikil vonbrigði. Ég er ekki hrifin af því hugarfari að maður eigi að ná sem bestum árangri með því að fara í kringum reglurnar.“

„Hún getur sett þetta fram hvernig sem hún vill og fundið sér góðan lögfræðing. En í grunninn hafði hún rangt við. Hún hefur engar afsakanir fyrir hegðun sinni.“

Mladenovic bætti enn frekar í gagnrýni sína með því að segja að Sharapova væri almennt ekki vel liðin af öðrum tennisspilurum og að hún hefði lítinn áhuga haft af því að eiga samskipti við aðra leikmenn.

Sjá einnig: Sharapova segist ekki hafa fengið fimm viðvaranir

Sharapova var sett í tímabundið bann núna um helgina og á von á þungri refsingu, allt frá sex mánaða til fjögurra ára keppnisbanns.


Tengdar fréttir

Tennisdrottning hrynur af stalli

Tekjuhæsta íþróttakona heims undanfarin ellefu ár féll á lyfjaprófi. Ber við sig kæruleysi en gengst við brotum sínum. Gæti fengið allt að fjögurra ára bann.

Hvað er meldóníum?

"Það er lyf sem er aðallega notað við hjartasjúkdómum og skorti á blóðflæði til hjartans,“ sagði Birgir Sverrisson, starfsmaður lyfjaeftirlits ÍSÍ, í samtali við íþróttadeild í gær um meldóníum, lyfið sem felldi Mariu Sharapovu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×