Viðskipti erlent

Hagnaður HSBC dregst saman um 15 prósent

ingvar haraldsson skrifar
Hagnaður HSBC dróst saman um 15 prósent á síðasta ári og var 18,7 milljarðar punda, um 3.800 milljarðar íslenskra króna.
Hagnaður HSBC dróst saman um 15 prósent á síðasta ári og var 18,7 milljarðar punda, um 3.800 milljarðar íslenskra króna. vísir/ap
Hagnaður HSBC dróst saman um 15 prósent á síðasta ári og var 18,7 milljarðar punda, um 3.800 milljarðar íslenskra króna. Hlutabréfaverð í HSBC hefur fallið um 5,5 prósent frá því að afkoma fyrirtækisins var kynnt í morgun. BBC greinir frá.

Stuart Gulliver, forstjóri HSBC, fékk greiddar um 7,6 milljón punda í laun og bónusa árið 2014. Greiðslur til forstjórans lækkuðu úr 8,03 milljónum punda árið 2013. Gulliver sagði að bónusgreiðslur til hans hefðu lækkað í ljósi stöðu bankans.

Svissneskt útibú bankans var fyrr í þessum mánuði sakað um að hafa aðstoðað auðuga viðskiptavini við skattsvik.

Gulliver átti sjálfur reikning í útibúi bankans í Sviss samkvæmt frétt The Guardian. Eignarhald reikningsins var falið í gegnum félag sem Gulliver átti í Panama. Talið er að á reikningsupphæðin hafi numið um 5 milljónum punda, ríflega 1 milljarði íslenskra króna á gengi dagsins í dag.

Bresk yfirvöld eru með til skoðunar hvort sækja eigi bankann og æðstu yfirmenn hans til saka vegna aðstoðar svissneska útibúsins við skattaundanskot. HSBC ítrekaði afsökunarbeiðni á fyrra framferði bankans þegar afkoman var tilkynnt í morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×