Innlent

„Ekkert minna en traust á dómstólunum undir“

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Bjarni Benediktsson, starfandi fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að enn eigi eftir að svara því hvort að dómarar sem áttu í föllnum fjármálafyrirtækjum fyrir hrun og dæmdu í málum sem tengdust þeim eftir hrun hafi verið vanhæfir í einstökum málum. Dómarar verði að bregðast við umræðunni með upplýsingum svo engin vafi liggi á trausti til dómara.

„Ég er þeirrar skoðunar að ef menn vilja fara yfir einstök mál sem að menn hafi mögulega verið vanhæfir til þess að fjalla um eða dæma í þá verði einfaldlega að skoða það mál fyrir mál,“ sagði Bjarni sem var gestur Heimis Más Péturssonar í Víglínunni á Stöð 2 og Vísi.

Í ljós hefur komið að dómarar í Hæstarétti áttu hlut í fjármálafyrirtækjum á árunum fyrir hrun. Á árunum 2007 til 2008 áttu fjórir hæstaréttardómarar hluti í Glitni sem urðu verðlausir egar bankinn féll í hruninu 2008 og var fjárhagslegt tjón þeirra töluvert. Því hefur verið velt upp hvort að dómararnir hafi verið vanhæfir í málum sem tengdust Glitni. Um það eru skiptar skoðanir. 

Bjarni segir að þó að í einhverjum tilfellum hafi dómarar svarað fyrir sig og veitt upplýsingar þurfi að taka af öll tvímæli í þessum málum.

„Það skiptir hins vegar verulega máli fyrir dómskerfið, dómstólinn og jafnvel einstaka dómara að bregðast við umræðunni með upplýsingumog það er ekkert minna undir en traust á dómstólunum undir,“ sagði Bjarni.

„Eftir situr þessi spurning hvort að í einstölum málum hafi menn verið vanhæfir. Þeir sem áttu undir í þeim málum hljóta að vera velta því fyrir sér hvort það kunni að hafa einhver áhrif,“ sagði Bjarni en umræðu Heimis og Bjarna um þetta mál sjá í myndskeiðinu hér að ofan.

Sjá má þáttinn í heild sinni hér.


Tengdar fréttir

Markús telur sig ekki hafa verið vanhæfan

Markús Sigurbjörnsson, forseti Hæstaréttar, átti í umfangsmilklum hlutabréfaviðskiptum á árunum fyrir hrun en hefur ekki vikið sæti í svokölluðum hrunnmálum.

Hlutabréf dómara opinber almenningi í Noregi

Í Noregi eru upplýsingar um eignarhlut dómara í félagi eða fyrirtæki opinberar almenningi. Skúli Magnússon, formaður dómarafélags Íslands, segir ný lög um dómstóla sem taka gildi um áramótin strangari hvað eignarhlut dómara varðar.

Ingveldur umsvifamikil í hlutabréfum

Auk þess að eiga hlut í Glitni, eins og Fréttablaðið greindi frá í gær, átti Ingveldur Einarsdóttir, hæstaréttardómari, einnig hluti í Landsbankanum, Kaupþingi og Straumi-Burðarás fyrir hrun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×