Viðskipti innlent

„Ég er fullur eldmóðs“

Samúel Karl Ólason skrifar
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, segir skýrslu Ríkisendurskoðunar sem gefin var út í vikunni vera alvarlega gagnrýni. Bankinn var gagnrýndur fyrir að selja eignir á síðustu sex árum sem ekki voru seldar í opnu ferli. Hann segist ekki ætla að segja af sér vegna skýrslunnar.

„En við höfum fylgt lögum og reglum og starfað í samræmi við skipulag bankans eins og það hefur verið og meðal annars kynnt fyrir hluthöfum. Þannig að þarna koma fram ákveðin sjónarmið á hlutina og það er eðlilegt, sérstaklega þegar menn eru að rýna aftur á bak, að menn sjái hlutina aðeins með mismunandi hætti og geti bent á ákveðna hluti. Þannig viljum við lesa hana,“ segir Steinþór.

„Við tökum þessu mjög alvarlega. Það er gott að fá þessa skýrslu. Það er fullt í henni sem við getum litið á og rýnt í og athugað hvort við getum gert betur. Við höfum nú bætt mikið hlutina hérna hjá okkur á undanförnum árum jafnt og þétt og sérstaklega í vor settum við nýja stefnu og nýjar reglur.“

Sjá einnig: Ríkisendurskoðun gagnrýnir verklag Landsbankans við eignasölur síðustu sex ár

Steinþór segir að nánast allar eignir bankans hafi verið seldar í opnu söluferli. Um sé að ræða sex þúsund eignir sem hafi verið seldar.

„Í nokkrum undantekningartilvikum var tekin ákvörðun um að víkja frá þeirri reglu sem okkur þykir góð. Þar sem við töldum að hagsmunir bankans væri betur borgið, byggt á þeim upplýsingum og þeirri stöðu sem við vorum í á þeim tíma.“

Sjá einnig: Landsbankinn tekur skýrslu Ríkisendurskoðunar alvarlega

Aðspurður hvort að einhvers misskilnings gæti hjá Ríkisendurskoðenda í skýrslunni segir Steinþór að í sumum tilfellum hefði umfjöllun Ríkisendurskoðunar mátt vera ítarlegri.

Nánar verður fjallað um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld.


Tengdar fréttir

Nýtur enn trausts bankaráðsins

Bankaráð Landsbankans fékk drög að skýrslu Ríkisendurskoðunar tæpum tveimur mánuðum áður en hún var birt. Steinþór Pálsson nýtur enn trausts til að gegna starfi bankastjóra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×