Viðskipti innlent

"Dómurinn mun hafa neikvæð áhrif á kerfið"

Í fréttatilkynningu frá FME kemur fram að dómurinn ógni ekki fjármálastöðuleika.
Í fréttatilkynningu frá FME kemur fram að dómurinn ógni ekki fjármálastöðuleika.
Fjármálaeftirlitið segir að niðurstaða Hæstaréttar varðandi endurútreikning á gengistryggðu láni muni hafa neikvæð áhrif innan fjármálakerfisins.

Í fréttatilkynningu frá FME kemur fram að dómurinn ógni þó ekki fjármálastöðuleika.

„Áhrifin gætu orðið mismikil eftir fjármálafyrirtækjum og í sumum tilvikum gætu þau jafnvel verið óveruleg," segir í tilkynningunni.

Einnig kemur fram að FME muni hefja vinnu við mat á áhrifum dómsins á fjárhagsstöðu einstakra fjármálafyrirtækja.

Hægt er að lesa fréttatilkynninguna í heild sinni hér fyrir neðan:



Fjármálastöðugleika ekki ógnað

Í ljósi dóms Hæstaréttar frá 15. febrúar 2012 í máli sem varðaði endurútreikning á gengistryggðu láni vill Fjármálaeftirlitið koma eftirfarandi á framfæri:

Ljóst er að niðurstaða dómsins mun hafa neikvæð áhrif innan kerfisins, en þó ekki að því marki að það ógni fjármálastöðugleika. Áhrifin gætu orðið mismikil eftir fjármálafyrirtækjum og í sumum tilvikum gætu þau jafnvel verið óveruleg. Því er á þessari stundu ekki ljóst hver áhrif dómsins verða að lokum. Þá er eiginfjárstaða viðskiptabankanna langt umfram þær kröfur sem Fjármálaeftirlitið gerir.

Fjármálaeftirlitið mun strax hefja vinnu við mat á áhrifum dómsins á fjárhagsstöðu einstakra fjármálafyrirtækja. Mikilvægt er að eyða allri óvissu um fordæmisgildi dómsins og áhrif hans á endurútreikning gengistryggðra lána.







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×