Golf

Blíðviðri á fyrsta keppnisdegi Íslandsbankamótaraðarinnar 2015 | Myndir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Golfsamband Íslands
Golftímabilið hófst formlega í morgun þegar fyrsta höggið var slegið á Íslandsbankamótaröð unglinga á þessu keppnistímabili á Garðavelli á Akranesi. Rúmlega 100 kylfingar keppa á mótinu en þrír aldursflokkar eru hjá báðum kynjum.

 

Veðrið er ljómandi gott á Akranesi þessa stundina en elstu keppendurnir í flokknum 17-18 ára leika 54 holur á þremur dögum. Á laugardag og sunnudag bætast 15-16 ára flokkurinn við keppendahópinn og 14 ára og yngri hefja einnig leik á morgun.

Hér fyrir ofan má sjá myndir frá keppninni í morgun en myndirnar koma frá Golfsambandi Íslands.

Alls verða mótin sex líkt og undanfarin ár. Íslandsmótið í holukeppni fer fram á Strandarvelli á Hellu og sjálft Íslandsmótið í golfi í þessum aldursflokki fer fram á Grafarholtsvelli. Húsatóftavöllur í Grindavík mun taka á móti keppendum á Íslandsbankamótaröðinni í júní og er þetta í fyrsta sinn sem mótaröðin fer fram á þeim velli.

Samhliða Íslandsbankamótaröðinni fer fram áskorendamótaröð Íslandsbanka. Sú mótaröð er ætluð fyrir keppendur sem vilja öðlast keppnisreynslu áður en þeir stíga inn á sviðið á sjálfri Íslandsbankamótaröðinni. Fyrsta mótið á áskorendamótaröðinni hefst á Kálfatjarnarvelli á laugardaginn hjá Golfklúbbi Vatnsleysustrandar.

Í elsta aldursflokknum verða leiknar 54 holur á öllum mótunum nema á Íslandsmótinu í holukeppni. Það er gert vegna reglna um heimslista áhugamanna. Elsti aldursflokkurinn hefur því keppni einum degi fyrr en aðrir keppendur. Alls eru keppnisflokkarnir þrír hjá báðum kynjum á Íslandsbankamótaröðinni, 17-18 ára, 15-16 ára, 14 ára og yngri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×