ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL NÝJAST 07:00

Titillinn réðst á flautukörfu

SPORT

„Afi feiti“ ekki enn fundinn

 
Innlent
10:12 10. NÓVEMBER 2014
Móðir annars drengsins heyrði fyrir tilviljun samtal sonar síns við vin sin um hvort þeir ættu að fara heim til „afa feita“.
Móðir annars drengsins heyrði fyrir tilviljun samtal sonar síns við vin sin um hvort þeir ættu að fara heim til „afa feita“. VÍSIR / GETTY IMAGES

Kynferðisbrotadeild lögreglunnar hefur ekki enn haft hendur í hári meintum barnaníðingi sem kallaður hefur verið „Afi feiti“. Foreldrar tveggja fimm ára gamalla drengja í Kórahverfinu í Kópavogi hafa lagt fram kæru á hendur manninum. Maðurinn á að hafa boðið drengjunum heim til sín með loforðum um sælgæti og teiknimyndir þar sem hann mun hafa sýnt þeim kynfæri sín.

„Rannsóknin er í gangi ennþá en vísbendingar sem við höfum fengið hafa ekki leitt til handtöku,“ segir Kristján Ingi Kristjánsson aðstoðaryfirlögregluþjónn aðspurður um stöðu rannsóknarinnar. Drengirnir tveir geta ekki vísað veginn heim til mannsins. Skýrsla hefur verið tekin af þeim í Barnahúsi.

Björn Einarsson, faðir annars drengsins og körfuboltaþjálfari í Keflavík, birti opið bréf á Facebook-síðu sinni þar sem hann auglýsti eftir manninum. Í bréfinu sagði Björn að barnsmóðir hans hafi fyrir tilviljun heyrt samtal fimm ára sonar þeirra og vinar hans þar sem þeir ræddu hvort þeir ættu að fara út að leika á skólasvæðinu eða fara heim til „Afa feita“.


Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

 

MEST LESIÐ

  • Nýjast á Vísi
  • Mest Lesið
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
Forsíða / Fréttir / Innlent / „Afi feiti“ ekki enn fundinn
Fara efst