Glamour

Zoe Saldana átti frumsýningu Star Trek í Givenchy kjól

Ritstjórn skrifar
Zoe er yfirleitt sú glæsilegasta á rauða dreglinum hverju sinni.
Zoe er yfirleitt sú glæsilegasta á rauða dreglinum hverju sinni. Myndir/Getty
Zoe Saldana bar af á rauða dreglinum fyrir frumsýningu kvikmyndarinnar Star Trek Beyond. Hún klæddist ljósbláum pallíettukjól frá haustlínu Givenchy. Kjóllinn er í hálfgerðu hafmeyju sniði og skemmtilega opinn í bakið eins og sjá má á myndunum hér fyrir neðan. 

Það hefur vakið athygli að Zoe velur sér yfirleitt hlutverk sem gerast úti í geimi eða öðrum plánetum, eins og Star Trek. Hún hefur einnig leikið í Avatar og Guardians of the Galaxy ásamt fleiri Star Trek myndum í gegnum tíðina. Ástæðuna segir hún vera að það er auðveldara að fá hlutverk fyrir konur úti í geimi heldur en á jörðu niðri. Athyglisverður en jafnframt sorglegur punktur hjá þessari hæfileikaríku leikkonu. 

Þessi ljósblái Givenchy kjóll er einstaklega flottur.Myndir/Getty
Kjóllinn er ekki verri í bakinu.





×