Tónlist

YouTube-strákar komnir með risasamning

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/Fésbókarsíða sveitarinnar
Strákasveit frá Brooklyn sem spilaði fyrir smámynt á Times Square síðastliðið sumar hefur skrifað undir risasamning við Sony. Frammistaða þeirra á götum New York var tekin upp og fór víða í dreifingu á YouTube. New York Post greinir frá.

Hljómsveitin „Unlocking the Truth“ fékk 1,5 milljón áhorf á frammistöðu sína á Times Square. Samningur sveitarinnar við Sony hljóðar upp á 1,8 milljónir dollara sem svarar til 200 milljóna íslenskra króna.

„Ég er svo spenntur. Við erum búnir að meika það,“ segir trommarinn Jarad Dawkins sem er tólf ára. Félagar hans í hljómsveitinni eru árinu eldri.

Það er hins vegar ekki svo að strákarnir séu komnir með beinharða peninga í vasa sína ef frá er talin 60 þúsund dollara upphafsgreiðsla sem svarar til tæplega 7 milljóna íslenskra króna. Um fimm plötu samning er að ræða og þurfa strákarnir að selja yfir 250 þúsund eintök af fyrstu plötu sinni til að landa milljónunum tvö hundruð.

Sérfræðingur sem New York Post ræddi við sagði 250 þúsund plötu markmiðið afar langsótt. Í samanburði hefðu selst 600 þúsund eintök af síðustu plötu Beyonce.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×