Innlent

Yfirmaður Interpol: Ísland sönnun þess að byssueign þarf ekki að þýða háa glæpatíðni

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Ronald K. Noble framkvæmdastjóri Interpol er í opinberri heimsókn á Íslandi. Hann segir að fjöldi skotvopna á Íslandi í umferð hjá almenningi sé sönnun þess að hægt sé að halda glæpatíðni lágri þrátt fyrir mikinn fjölda skotvopna. 

Um sextíu þúsund skráð skotvopn voru á Íslandi í júlí 2011 og er talið að þeim hafi bara fjölgað síðan. Talið er að á bak við þennan fjölda skotvopna séu um þrjátíu þúsund virk skotvopnaleyfi. 

Rúmlega 30 byssur eru á hverja 100 íbúa hér á landi og er Ísland í 15. sæti í heiminum yfir fjölda skotvopna per íbúa samkvæmt The Small Arms Survey, rannsóknarverkefnis sem rekið er af The Graduate Institute of International and Development Studies, í Genf í Sviss. 

Dæmi eru um að safnarar hér á landi eigi nokkra tugi ef ekki hundruð skotvopna. Lögreglan hefur eftirlit með geymslu og varðveislu skotvopna og fer reglulega í heimsóknir til manna sem eiga fleiri en eina byssu. Meðal annars til að ganga úr skugga um að frágangur vopnanna sé tilhlýðilegur. 

Í Svíþjóð eru takmarkanir á því hversu mörg skotvopn hver og einn má eiga og er það bundið við sjö byssur en ekki eru slíkar takmarkanir hér á landi eða á hinum Norðurlöndunum.


Ronald K. Noble tók við sem framkvæmdastjóri Interpol um aldamótin og lætur senn að störfum. 

Hann hafði einsett sér að heimsækja öll 190 ríkin sem eiga beina aðild að Interpol. Ísland er síðasta ríkið sem hann heimsækir en hann hélt blaðamannafund með Haraldi Johannessen ríkislögreglustjóra í höfuðstöðvum embættisins við Skúlagötu í morgun.

Í stuttu viðtali ræðir Noble skotvopnaeign á Íslandi og sjá má viðtalið í meðfylgjandi myndskeiði. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×