Innlent

Yfirlýsing frá Kristínu Þorsteinsdóttur

Kristín Þorsteinsdóttir skrifar
Kristín Þorsteinsdóttir, útgefandi og aðalritstjóri fréttastofu 365.
Kristín Þorsteinsdóttir, útgefandi og aðalritstjóri fréttastofu 365.
Fréttablaðið er blað allra landsmanna. Þar skiptast menn á skoðunum í aðsendum greinum og ritstjórnargreinum. Fréttastofa 365 er stærsta fréttastofa landsins. Hana á að efla, auka hlut kvenna og standa vörð um sjálfstæði blaða-og fréttamanna. Til þess var ég ráðin.

Ólafur Þ. Stephensen fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins talar um í yfirlýsingu að ætlunin hafi verið að þrengja að sjálfstæði hans. Í leiðara hans á mánudaginn, er helst á honum að skilja að hann hafi ritstýrt Fréttablaðinu í fjögur og hálft ár undir eilífum þrýstingi vondra eigenda. Það er undarlegt að hann skuli hafa látið bjóða sér slíkt. Ef eitthvað væri hæft í orðum Ólafs þá hefði umræddur leiðari ekki litið dagsins ljós. Af skrifunum má ráða að sá sem trúir á draug, hann finnur draug.

Í þessu sambandi hefur verið rætt um dagskrárkynningu, sem undirrituð tók út af Vísi í síðustu viku. Í mínum huga var hún á mörkum þess að vera auglýsing.  Það er ekkert launungarmál að mér finnst slíku efni hafa verið gert alltof hátt undir höfði undanfarin misseri, þótt það eigi á stundum vissulega rétt á sér. Deilur um slíkt hafa átt sér stað á öllum fjölmiðlum, sem ég þekki til. Kynningin hafði fengið ítarlega umfjöllun í Fréttablaðinu þann dag. Þegar nákvæmlega sama efni birtist svo á Vísi, var ljóst að ekki hafði verið farið eftir stefnu útgefanda. Í siðareglum 365 segir:

„Til að almenningur þurfi aldrei að vera í vafa um hlutleysi umfjöllunar skal gera skýran greinarmun á auglýsingum og öðru efni.”




Fleiri fréttir

Sjá meira


×