Innlent

Yfir ein og hálf milljón heimsókna

Stefán Árni Pálsson skrifar
mynd/skjáskot/míla
Rúmlega ein og hálf milljón hefur heimsótt síðu Mílu, livefromiceland.is frá því Míla setti upp vefmyndavélar við Vaðöldu með útsýni yfir Bárðarbungusvæðið og kom þeim í loftið.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Mílu. Þar kemur fram að á þessum tveimur vikum sem liðnar séu, hafa alls um 1.520.000 heimsóknir verið síðuna, og á föstudag 29. ágúst voru heimsóknir flestar eða alls rétt tæpar 422.000 á einum sólarhring, frá miðnætti til miðnættis.

Flestar heimsóknir komu frá Evrópu og Ameríku, en aðeins 20% heimsókna eru frá íslenskum notendum sem er þó dágóður fjöldi eða um 300 þúsund.

Fyrsta vefmyndavél Mílu var sett upp í Eyjafjallagosinu árið 2010. þá voru öll met slegin í heimsóknum á eina síðu.

Síðan hafa margir vanið komur sínar á síðuna til að fylgjast með vefmyndavélunum þann tíma sem liðinn er frá síðasta gosi.


Tengdar fréttir

Live webcam: "Similar in size to the largest Krafla eruptions"

Magma started flowing in Holuhraun at 5:00 AM this morning. The eruption is located on the same fissure as the previous eruption on Friday morning, but is many times larger. This is the third eruption in the Bárðarbunga region in roughly a week, and the largest by far.

Hvað á nýja eldstöðin að heita?

Fjölmargar tillögur um nafn á nýju eldstöðina hafa borist fréttastofu. Flestir leggja til Drekahraun og þá hafa einnig fjölmargir lagt til Bárðarhraun.

Flatarmál hraunsins nú rúmir fjórir ferkílómetrar

TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, flaug yfir umbrotasvæðið við norðanverðan Vatnajökul milli klukkan 13:45 og 16:30 í dag. Gossprungan er um 1,5 kílómetri og er samfellt gos á um 600 til 800 metra löngum kafla.

„Mjög fallegt sprungugos“

Þorbjörg Ágústsdóttir doktorsnemi í jarðeðlisfræði var meðal þeirra fyrstu á eldstöðvarnar í Holuhrauni í morgun. Hún segir gosið afar fallegt og að hraunflæðið sé töluvert meira en í gosinu á föstudag.

Stærra gos en síðast

"Þetta er hraungos og það er aðeins meira en síðast. Meira hraun sem er ósköp eðlilegt og eins og við var búist,“ segir eldfjallafræðingurinn Ármann Höskuldsson

Ægifegurð við Holuhraun

Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari náði þessum mögnuðu myndum af nýja hrauninu eftir gosið í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×