Yfir 500 hús eru ónýt eftir jarđskjálfta

Fréttablađiđ Erlent 06. september 2010 03:15
Sprunga sem er allt ađ 3,5 metrar á breidd myndađist í jarđskjálftanum og urđu víđa skemmdir á húsum og vegum vegna hennar.Fréttablađiđ/AP
Sprunga sem er allt ađ 3,5 metrar á breidd myndađist í jarđskjálftanum og urđu víđa skemmdir á húsum og vegum vegna hennar.Fréttablađiđ/AP
Í það minnsta 500 hús í borginni Christchurch á Nýja-Sjálandi eru hrunin eftir jarðskjálfta sem reið yfir á föstudag og fjöldi húsa til viðbótar skemmdist. Mikil mildi þykir að enginn hafi látist og aðeins tveir slasast illa.

Skjálftinn, sem var um 7,1 að styrkleika, varð klukkan 4.35 að laugardagsmorgni þegar flestir íbúar voru í fastasvefni. „Ef skjálftinn hefði orðið fimm klukkustundum fyrr eða fimm klukkustundum seinna hefði manntjónið getað orðið gríðarlegt," sagði John Key, forsætisráðherra Nýja-Sjálands. Um 400 þúsund manns búa í Christchurch.

Rafmagni sló út í borginni og nærsveitum vegna skjálftans, og vatns- og gasleiðslur fóru í sundur. Rafmagn var komið á víðast hvar á sunnudag, en ekki hafði tekist að koma öðrum leiðslum í lag. Stórir vatnsdunkar og færanleg klósett voru flutt í hverfi þar sem enn var vatnslaust í gær.
Einhver tími mun líða þar til lífið kemst í samt lag í Christchurch. Skólar verða lokaðir næstu daga þar til gengið hefur verið úr skugga um að þeir séu íveruhæfir.

Nýja-Sjáland liggur á flekamótum Kyrrahafsflekans og Ástralíuflekans. Jarðskjálftar eru algengir þar sem flekarnir rekast saman. Mark Quigley, jarðfræðiprófessor við Canterbury háskóla á Nýja-Sjálandi, segir að svo virðist sem ný brotalína hafi myndast í skjálftanum. Sprunga myndaðist og jörðin lyftist á sumum stöðum allt að tvo metra upp, segir Quigley.

„Þetta er löng brotalína sem hefur rústað húsum og klofið í sundur vegi," segir Quigley. „Við sáum tvö hús sem höfðu brotnað í tvennt í skjálftanum."

„Jörðin mín lítur út eins og úfinn sjór núna," segir Roger Bates, bóndi sem á kúabú skammt frá upptökum skjálftans. Hann segir að jörðin hafi gengið í öldum, og hækkunin þar sem brotalínan gangi í gegn sé allt að 1,5 metrar.

Sérfræðingar telja að manntjón í skjálftanum hafi verið lítið vegna strangra reglna um húsbyggingar á Nýja-Sjálandi. Reglurnar voru hertar til muna fyrir tíu árum.

Jarðskjálftar eru algengir á Nýja-Sjálandi. Um 1.400 skjálftar verða á hverju ári, en aðeins 150 eru nægilega öflugir svo íbúar verði varir við þá. Síðasti öflugi jarðskjálftinn sem reið yfir eyjarnar varð í júlí 2009. Hann var 7,8 að styrkleika, svo öflugur að hann færði suðurodda landsins 30 sentimetrum nær Ástralíu.

brjann@frettabladid.is

Fleiri fréttir - Erlent

Erlent 13. feb. 2012 06:42

Miklar óeirđir á götum Aţenu í nótt

Miklar óeirđir voru á götum Aţenu og víđar í Grikklandi í gćrkvöldi og langt fram á nótt m...  

Meira
Erlent 13. feb. 2012 03:13

Vega-flaug á loft í fyrsta sinn

Eldflaug af tegundinni Vega verđur skotiđ á loft í fyrsta sinn, rétt fyrir hádegi í dag. G...  

Meira
Erlent 13. feb. 2012 03:13

Litlar líkur á ósigri forsetans

Ekki er mikilla tíđinda ađ vćnta úr forsetakosningunum sem fóru fram í Túrkmenistan í gćr....  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 22:00

Trylltur mađur olli nćstum flugslysi

Brasilísk farţegaţota neyddist til ţess ađ lenda eftir ađ einn farţegi trylltist og réđist...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 23:29

Listamađurinn fékk sjö verđlaun

Franska myndin Listamađurinn fékk flest verđlaun á Bafta hátíđinni í kvöld, eđa sjö talsin...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 21:00

Grammy-verđlaunin haldin í skugga andláts Whitney Houston

Grammy verđaunahátíđin verđur haldin í kvöld í skugga sviplegs fráfalls söngdívunnar Whitn...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 17:51

Fimm ára stúlku bjargađ úr snjóflóđi - lá grafin í tíu klukkustundir

Fimm ára gamalli stúlku var bjargađ eftir ađ hún lenti í snjóflóđi ásamt fjölskyldu sinni ...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 15:51

Átta handteknir fyrir ađ slátra villtum dýrum

Lögreglan í Bangkok í Tćlandi handtók átta manns fyrir ađ slátra villtum dýrum. Í raun var...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 15:29

Ađstođarmađur forseta Kongó látinn - fjármálaráđherrann slasađur

Ađstođarmađur forseta Kongó, Augustin Katumba Mwanke, lést ţegar einkaflugvél sem hann var...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 12:15

Kafteinn klúđur: Myndband sýnir ađgerđarleysi skipstjórans

Myndband sem sýnir viđbrögđ skipstjóra skemmtiferđaskipsins Costa Concordia, sem strandađi...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 10:15

Romney sigrađi í Maine fylki

Mitt Romney, sigrađi í forkosningu repúblikanaflokksins í Maine fylki í Bandaríkjunum í gć...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 10:03

Grunur leikur á ađ Whitney hafi drukknađ í bađkari

Grunur leikur á ađ söngdívan Whitney Houston hafi drukknađ í bađkari á hóteli sínu ţar sem...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 09:52

Fannst látin á hótelherbergi

Bandaríska söng- og leikkonan Whitney Houston er látin, 48 ára ađ aldri. Hún fannst látin ...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 03:13

Whitney Houston látin

Söngkonan Whitney Houston er látin, 48 ára ađ aldri. Talskona hennar stađfestir ţetta í sa...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viđskipti
  • Lífiđ

Fréttir eftir mánuđi

Ţú ert hér: Forsíđa / Fréttir / Erlent / Yfir 500 hús eru ónýt eftir jarđskjálfta