Fótbolti

Xabi vill vera áfram hjá Bayern

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Xabi í leik með Bayern.
Xabi í leik með Bayern. vísir/getty
Hinn 35 ára gamli Xabi Alonso hefur áhuga á því að framlengja samning sinn við Bayern München.

Xabi hefur verið lykilmaður hjá Bayern síðan hann kom til félagsins frá Real Madrid fyrir tveim árum síðan.

Heilsa miðjumannsins er fín og hann hefur aðeins misst af einum leik á þessari leiktíð. Honum líður vel í Þýskalandi og vill endilega halda áfram hjá Bayern.

„Ég vil vera hérna áfram. Mér líður vel sem og fjölskyldunni. Tímabilið er langt og við setjumst örugglega niður og ræðum framhaldið fljótlega,“ sagði Xabi.

Samningur hans við Bayern rennur út næsta sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×