Viðskipti innlent

WOW ætlar að ráða 28 flugmenn

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Skúli Mogensen, forstjóri WOW air.
Skúli Mogensen, forstjóri WOW air. Mynd/Valgarður
WOW air hyggst ráða til sín 28 flugmenn og mun auglýsa stöðurnar á morgun. WOW air fær að öllum líkindum flugrekstarleyfi á næstu dögum eða vikum og munu flugmenn starfa undir merkjum félagsins.

Ráðning flugmanna er liður í auknum umsvifum félagins en um er að ræða framtíðarstörf á nýlegum A321 og A320 vélar WOW air. Þetta kemur fram í tilkynningu frá WOW air.

„Það er ánægjulegt að auglýsa eftir flugmönnum í framtíðarstörf sem munu fljúga undir flaggi WOW air. Félagið hefur stækkað jafnt og þétt frá fyrsta flugi þess í maí 2012 en það ár flaug félagið með um 90 þúsund farþega, núna í ár verður farþegafjöldi um 450 þúsund og stefnt er að á næsta ári að félagið fljúgi með yfir 720 þúsund farþega“ segir Skúli Mogensen forstjóri og stofnandi WOW air.

WOW air hyggst fljúga til 18 áfangastaða bæði í Evrópu og Norður Ameríku frá næsta vori.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×