Enski boltinn

West Ham krækir í einn besta leikmann Valencia

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Feghouli er nýjasti liðsmaður West Ham.
Feghouli er nýjasti liðsmaður West Ham. mynd/heimasíða west ham
Alsírski kantmaðurinn Sofiane Feghouli er genginn í raðir enska úrvalsdeildarliðsins West Ham United.

Feghouli, sem er 26 ára gamall, kemur á frjálsri sölu frá Valencia þar sem hann hefur leikið frá árinu 2010. Alsíringurinn skrifaði undir þriggja ára samning við West Ham.

Feghouli lék alls 243 leiki fyrir Valencia og skoraði í þeim 42 mörk. Þá hefur hann skoraði 11 mörk í 40 leikjum fyrir Alsír.

Lundúnaliðið endaði í 7. sæti úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili og ætlar sér enn stærri hluti á því næsta.

Feghouli er annar leikmaðurinn sem semur við West Ham eftir að tímabilinu lauk á eftir Norðmanninum Håvard Nordtveit.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×