Handbolti

Vujovic: Framtíð íslenska liðsins er björt

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
„Ég veit ekki hvað skal segja,“ sagði þjálfari Slóvena, Veselin Vujovic, gjörsamlega búinn á því eftir hinn magnaða leik Íslands og Slóveníu í dag. Drengir Vujovic skriðu út úr höllinni með tvo punkta en það hefði ekki verið mjög ósanngjarnt ef Ísland hefði fengið annað stigið.

„Þetta var mjög erfiður leikur fyrir bæði lið. Varnarleikurinn var góður í fyrri hálfleik og þetta voru mikil líkamleg átök,“ sagði Vujovic sem var ekki nógu ánægður með sitt lið er hann gerði breytingar á því.

„Þetta voru ungir strákar sem gerðu mistök. Ísland komst inn í leikinn en á endanum er það Slóvenía sem er ánægt.“

Þessi litríki kappi talaði fallega um íslenska liðið.

„Ísland er með mjög gott lið og ég ber mikla virðingu fyrir íslenskum handbolta. Geir er vinur minn frá því við spiluðum á móti hvor öðrum. Það er góður karakter í íslenska liðinu og framtíð liðsins er björt. Ég er fullviss um að Ísland vinni næstu þrjá leiki sína og fari áfram á mótinu.“

Ekki missa af neinu sem gerist á HM í Frakklandi. Vísir er með öflugt fréttateymi á mótinu sem færir ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).






Tengdar fréttir

Forsetinn spáir tveggja marka sigri

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, er eins og rokkstjarna í íþróttahöllinni í Metz og hundeltur af fjölmiðlum.

Ólafur: Höfum ekki tíma til að svekkja okkur

„Við vorum ekkert langt frá þessu, vorum inn í leiknum allan tímann og þetta hefði getað dottið báðum megin,“ segir Ólafur Guðmundsson, leikmaður íslenska landsliðsins, eftir svekkkjandi tap gegn Slóvenum á HM í handbolta í Frakklandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×