Margrét Kristmannsdóttir
formaður SVÞ
Andrés Magnússon
framkvæmdastjóri SVÞ
Margrét Kristmannsdóttir skrifar:
SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu hafði frumkvæði að því á síðasta ári að hafin yrði vinna við greiningu vörugjaldskerfisins, en vinna þessi fór fram í náinni samvinnu við fjármálaráðuneytið. Tilgangur greiningarinnar var að varpa ljósi á umfang vörugjalda og þeim áhrifum sem þau hafa á kauphegðun neytenda. Afrakstur þeirrar vinnu kom svo út í skýrslu sem SVÞ gaf út nýlega sem ber yfirskriftina „Vörugjaldskerfið á Íslandi“.
Með aðild Íslands að EFTA árið 1970 lækkuðu almennir tollar í samræmi við ákvæði aðildarsamningsins að EFTA. Til þess að mæta tekjutapi ríkisins vegna þeirra tollalækkana sem leiddu af EFTA aðildinni var lagt sérstakt vörugjald á ýmsar vörur. Á árinu 1975 voru síðan sett bráðabirgðalög um sérstakt tímabundið vörugjald en samkvæmt þeim bar að greiða vörugjald af mun fleiri vöruflokkum en áður. Vörugjöldin voru ekki tímabundnari en það að þau eru enn við lýði! Núgildandi lög um vörugjald tóku gildi í upphafi ársins 1988. Á undanförnum árum hafa ýmsar breytingar átt sér stað á lögunum sem einkum felast í afnámi vörugjaldsins á einstökum tollskrárnúmerum og breytingum á gjaldflokkum. Við þessar breytingar hefur þess ekki verið gætt að samskonar vörur fái sambærilega meðferð. Þótt grunnhugsunin að baki álagningu vörugjaldsins sé að auka skatttekjur ríkissjóðs og í sumum tilvikum að stýra neyslu almennings er það skoðun okkar að upphaflegur tilgangur vörugjaldsins eigi ekki við í dag. Neytendur hafi hagsmuni af því að skattheimtu sé haldið í lágmarki en hagsmunir þeirra felast einnig í því að skattkerfið sé einfalt, hlutlaust, gagnsætt og skilvirkt, enda er sá háttur til þess fallinn að stuðla að heilbrigðri samkeppni og bæta verðskyn neytenda.
Yfirlit yfir heildartekjur ríkissjóðs af vörugjöldum 2010 Almennt vörugjald, sem er sá þáttur vörugjaldanna sem íslensk verslun lítur hvað mest hornauga, skilar nú u.þ.b. 4,9 milljörðum króna í tekjur fyrir ríkissjóð á ári sem er einungis rúmlega 10% af heildartekjum ríkissjóðs af vörugjöldum.
Íslensk verslun hefur um langa hríð barist fyrir afnámi almenna vörugjaldsins. Gjaldið hefur öll einkenni ósanngjarnrar skattheimtu. Það mismunar vöruflokkum og atvinnugreinum, það er ógagnsætt og dýrt í framkvæmd. Hér má sjá dæmi um slíka mismunun í flokki vara sem eru algengar á öllum heimilum.
Í matvörum má telja til að mjólkurvörur eru án vörugjalda, en ýmsar staðgönguvörur eins og sojamjólk og hrísgrjónamjólk bera hins vegar 16 krónu vörugjald á hvern lítra. Þessi dæmi sem valin eru af handahófi sýna glögglega að vörugjaldið er lagt á með mjög handahófskenndum hætti. Einkenni góðrar skattheimtu er gagnsæi í framkvæmd, sanngirni og hlutleysi milli vara og vöruflokka. Það á ekki að vera hlutverk löggjafans að ákveða hvort neytendur kaupa sojamólk eða kúamjólk, svo dæmi sé tekið. Hagsmunir einnar atvinnugreinar eru varðir á kostnað verslunarinnar. Þannig er íslenskur landbúnaður varinn með ofurtollum gegn innfluttri vöru enda vitað að við skreppum ekki til útlanda til að kaupa í matinn. Íslensk verslun býr að sama skapi við tolla og vörugjöld sem gerir vöruverð mun hærra hér en í þeim löndum sem við berum okkur saman við. En hér getur íslenski neytandinn – sá sem hefur efni á að ferðast – keypt sambærilega vöru erlendis án tolla og vörugjalda og oft einnig án virðisaukaskatts og flutt heim með sér.
Tollar og vörugjöld sem eiga að vernda störf í einni atvinnugrein, í þessu tilfelli störf í landbúnaði, virka þveröfugt í annarri með þeim afleiðingum að umtalsverð verslun flyst úr landi. Með því tapast verðmæt störf úr landi og verðmætar skatttekjur verða eftir erlendis. Störf í verslun og þjónustu eru nefnilega jafnverðmæt og í öðrum atvinnugreinum. Stjórnmálamönnum hefur í gegnum tíðina reynst erfitt að skilja þetta og þótt sjálfsagt og eðlilegt að draga taum sumra atvinnugreina á kostnað annarra.
Þar sem vörugjöld eru lögð á í nágrannalöndum okkar liggja skýrar forsendur að baki. Þar eru þessi gjöld lögð á vörur á borð við tóbak, áfengi, sykur, eldsneyti og bifreiðar. Tilgangur skattheimtunnar er að hafa áhrif á neysluna vegna meintra skaðlegra áhrifa þessara vara. Þar liggja skýrar forsendur á bak við álagningu vörugjaldsins sem leiðir til þess að skattkerfið er mun gagnsærra en hér á landi. Þar af leiðandi er viðhorf neytenda gagnvart vörugjaldinu mun jákvæðara, enda er vöruflokkum ekki mismunað með sama hætti og hér þekkist.
Jafnvel þótt vörugjaldið sé mikilvægur tekjustofn ríkisins mun tekjumissir vegna afnáms vörugjalda af ákveðnum vöruflokkum að öllum líkindum jafnast út til lengri tíma litið, þar sem lækkun vöruverðs leiðir til aukinnar sölu innanlands og þar af leiðandi aukinna tekna til ríkisins. Ástæða þess er sú að neytendur hafa ekki sama hvata til þess að kaupa vöru erlendis ef hún ber sambærileg gjöld hér á landi, en þannig leiðir núverandi kerfi ekki aðeins til misræmis heldur einnig til aukinnar hættu á undanskotum sem aftur leiðir til aukins kostnaðar vegna eftirlits.
Að tillögu SVÞ hefur fjármálaráðherra nú ákveðið að skipa starfshóp um heildarendurskoðun vörugjaldskerfisins. Það er mikið fagnaðarefni enda er það í fyrsta skipti í 25 ár sem farið er heildstætt ofan í saumana á þessu stagbætta kerfi. SVÞ mun eftir sem áður berjast fyrir afnámi vörugjaldsins í núverandi mynd, enda er gjaldið einn mesti skaðvaldurinn sem greinin býr við. Mikilvægast er þó að það takist að ná sátt um kerfi sem er gagnsætt, sanngjarnt og ódýrt í framkvæmd. Vörugjaldskerfið í núverandi mynd er draugur úr fortíðinni sem mikilvægt er að uppræta.
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Margumbeðnar og löngu tímabærar endurbætur á Hverfisgötu hefjast innan tveggja mánaða. Stór hluti götunnar verður lagfærður í tveimur áföngum frá júlí og fram í október: Fyrst frá Vitastíg vestur að F...
Meira
Á vef landlæknisembættisins er að finna marga nafnalista yfir þá sem fengið hafa starfsleyfi í heilbrigðisþjónustu m.a. ljósmæður, lækna, sjúkraþjálfara, sálfræðinga og aðrar stéttir sem starfa í heil...
Meira
Stuttu fyrir Hrunið skrifaði ég pistil í bók og velti fyrir mér hvort það væri tilviljun að skopmyndirnar af Múhameð spámanni hefðu birst í einu stærsta dagblaðinu í Danmörku á sama tíma og Dansk Folk...
Meira
Í vikunni bárust a.m.k tvær jákvæðar fréttir sem tengjast áherslum Íslands í velferðarmálum. Báðar fréttirnar sýna að viðbrögð okkar við hruninu hafi verið félagslega meðvituð og árangursrík á sviði v...
Meira
Framganga SÍ og velferðarráðuneytisins vegna nýrrar lagasetningar og reglugerðar um greiðsluþátttöku SÍ á lyfjum hefur verið ótrúleg, svo ekki sé meira sagt.
Meira
Um þessar mundir er í kynningu tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Landsímareit í Kvosinni í Reykjavík. Samkvæmt henni má reisa hús í Kirkjustræti, á bílastæðinu andspænis hinum gömlu húsum Alþingis
Meira
Það er komið að lokapunktinum hjá nemendum mínum á þessari önn: lokapróf. Ég stend og horfi yfir hópinn á þessa einstaklinga sem ég hef fengið að kynnast eina önn....
Meira
Í síðustu viku átti sá fréttnæmi atburður sér stað að einn frægasti og merkasti stjarneðlisfræðingur nútímans, Stephen Hawking, tók þá pólitísku ákvörðun að sniðganga ráðstefnuna ”The Israeli Pr...
Meira
Undanfarið hefur verið nokkur umfjöllun um náttúruvernd á Reykjanesskaga og er það mjög ánægjulegt. Grindavíkurbær er landmesta sveitarfélagið á Reykjanesi og eru margar af perlum svæðisins innan skip...
Meira
Árið 1992 undirrituðu Íslendingar Ríó-sáttmálann um að sjálfbær þróun yrði höfð í hávegum, rányrkja lögð af og náttúran látin njóta vafans. Undirritun okkar hefur reynst marklaus og ekki pappírsins vi...
Meira
Talið er að tólf hundruð íslenskar konur beri með sér BRCA 2 genastökkbreytingu eins og Angelina Jolie. Hún komst í heimsfréttirnar í fyrradag þegar hún sagði frá því að hún hefði látið fjarlægja bæði...
Meira
Vefjagigt (e. fibromyalgia syndrome) er langvinnur fjölkerfasjúkdómur sem einkennist af útbreiddum stoðkerfisverkjum, þreytu og svefntruflunum. Að auki eru þeir sem þjást af vefjagigt oft með ýmis sta...
Meira
Á síðustu dögum hafa birst í fjölmiðlum greinar frá foreldrum þroskahamlaðra barna varðandi inntökureglur í Klettaskóla, fyrrum Öskjuhlíðarskóla. Í þessum greinum hafa ýmsar fullyrðingar verið settar ...
Meira
Það er gott þegar borgarar þessa lands hafa áhyggjur af því hvernig skattfé er varið. Vegagerðin sinnir hlutverki sínu með hagkvæmni að leiðarljósi og reynir eftir fremsta megni að nýta það fé sem er ...
Meira
Nú er í kynningu nýtt deiliskipulag á dýrmætum reit í hjarta borgarinnar, Landsímareitnum í Kvosinni. Ég skora á fólk að kynna sér það vel og senda inn athugasemdir á skipulag@reykjavik.is fyrir 23.ma...
Meira
Allar ákvarðanir eða ráðstafanir yfirvalda er varða börn skulu byggðar á því sem er börnum fyrir bestu (úr 3. grein Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna). Ég á mér draum. Draum um samfélag sem býður öllum...
Meira
Þórey Vilhjálmsdóttir, framkvæmdastjóri borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins, skrifar drengilega grein í Fréttablaðið þar sem hún rekur jákvæðar einkunnir sem borgarstjórn fær í nýrri úttektarský...
Meira
Þegar ég hugsa um íslensk stjórnmál verður mér oft hugsað til þessa málsháttar. Nú eru kosningar nýafstaðnar og tveir flokkar fengu samtals meirihluta þingmanna. Það er eðlilegt að þessir flokkar hugs...
Meira
Á tímum óstöðugleika í efnahagsmálum verða Norðurlandaríkin að fjárfesta til framtíðar. Þetta er skoðun norræna verkalýðssambandsins (NFS). Samstarfshefð norrænu ríkjanna er traust og nýtur alþjóðlegr...
Meira
Kolbrún Bergþórsdóttir vakti heldur betur upp umræðu á kaffistofum margra landsmanna þegar hún gagnrýndi einlæga aðdáendur Alex Fergusson í grein sinni "Gamall maður hættir í vinnu“ sem birtist ...
Meira
Fram undan eru tímar þar sem leysa þarf úr mikilvægum málum á hinum pólitíska vettvangi og afar brýnt er að það verði gert með þeim hætti að þjóðin fái ekki annan skell í ætt við þann sem hún fékk í o...
Meira