Sport

Vonn er enn ástfangin af Tiger

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hér má sjá parið er allt lék í lyndi.
Hér má sjá parið er allt lék í lyndi. vísir/getty

Skíðakonan Lindsey Vonn hefur loksins tjáð sig um skilnaðinn við kylfinginn Tiger Woods.

Vonn og Tiger voru kærustupar í ein þrjú ár en hættu saman í maí síðastliðnum. Þau hafa lítið sem ekkert tjáð sig um sambandsslitin.

Vonn opnaði sig aftur á móti í viðtali við CNN.

„Ég elskaði hann og ég elska hann enn í dag," sagði Vonn. „Við áttum ótrúleg þrjú ár saman en því miður ganga hlutirnir stundum ekki upp."

Vonn segir að þó svo þau hafi hætt saman þá líði þeim báðum vel í dag.

Skíðakonan hefur unnið flest heimsbikarmót allra kvenna og segist eiga þrjú góð ár eftir í brekkunum sem hún ætlar að njóta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×