Vonast eftir 15 þúsundum 15. mars 2010 05:30 þrír góðhjartaðir Dagur Kári, leikstjóri The Good Heart, ásamt framleiðendunum Þór Snæ Sigurjónssyni og Skúla Malmquist.fréttablaðið/stefán
Um tvö þúsund manns hafa séð kvikmyndina The Good Heart, eftir Dag Kára Pétursson, hérlendis síðan hún var frumsýnd 5. mars. Aðsókn um nýliðna helgi er ekki inni í þessum tölum. Þórir Snær Sigurjónsson, annar framleiðendanna, vonast eftir því að 10 til 15 þúsund áhorfendur muni á endanum sjá myndina. „Það er raunhæft markmið en aðalatriðið var að fá dreifingu í Bandaríkjunum sem við fengum. Við förum í 22 borgir og á VOD og í bíó 30. apríl,“ segir Þórir Snær. Myndin hefur einnig verið seld til um það bil 25 landa, m.a. Frakklands, þar sem hún verður frumsýnd í fjörutíu sýningarsölum í næstu viku. Aðspurður segir Þórir að þessi góða dreifing dugi þó ekki enn til að ná upp í kostnað myndarinnar. „Upphæðirnar eru aðeins lægri en þær voru fyrir einu til tveimur árum þegar við gerðum myndina,“ segir hann um peningana sem fást fyrir dreifinguna. „En við gerum okkur vonir um að ná endum saman. Hrunið fór líka illa með okkur í erlendum kostnaði. Þetta er ekki alveg komið en við gerum okkur vonir um að ná þessu saman.“ Hann tekur fram að heimamarkaðurinn sé mjög mikilvægur enda verður haldið áfram á fullu að markaðssetja myndina á Íslandi. „Orðsporið sem er komið frá þessum tvö þúsund manns er vonandi farið að breiðast út og viðbrögðin eru nokkuð jákvæð.“ Hann segir tvö þúsund áhorfendur fyrstu vikuna engin vonbrigði. „Þetta eru ekki ósvipaðar tölur og Nói [Albinói] var í á sínum tíma og hún endaði í tuttugu þúsundum. Ég held að hún taki þetta með tímanum. Ég held líka að þetta sé mynd fyrir alla.“ Um fimm þúsund manns sáu síðustu mynd Dags Kára, Voksne Mennesker, hér heima, töluvert færri en búist var við. -fb
Mest lesið Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp „Það má herma“ Tíska og hönnun Ung húð þarf ekki tíu skrefa húðrútínu Lífið samstarf Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Fleiri fréttir Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Sjá meira