Handbolti

Vonarstjarna Kiel gerir nýjan samning við félagið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Dahkme er markahæsti leikmaður Kiel á tímabilinu.
Dahkme er markahæsti leikmaður Kiel á tímabilinu. mynd/facebook-síða kiel
Rune Dahmke hefur framlengt samning sinn við Þýskalandsmeistara Kiel til ársins 2020.

Dahmke, sem er 22 ára, hefur fengið stærra hlutverk í liði Kiel á tímabilinu og er sem stendur markahæsti leikmaður liðsins í þýsku úrvalsdeildinni með 38 mörk.

Dahmke kom ungur til Kiel en faðir hans, Frank, lék með félaginu um 10 ára skeið á árum áður.

Dahmke er fjölhæfur leikmaður en hann getur bæði leikið í vinstra horni sem og fyrir utan.

Kiel er í 2. sæti þýsku deildarinnar með 12 stig eftir átta leiki, tveimur stigum á eftir toppliði Rhein-Neckar Löwen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×