Lífið

Vogin: Allt á sér ástæðu

Þú munt ekki missa trúna á sjálfa þig, það er aðalatriðið.
Þú munt ekki missa trúna á sjálfa þig, það er aðalatriðið.
Elsku kjarkmikla Vog. Það er ekki hægt að segja að allt hafi farið nákvæmlega eins og þú ætlaðir þér. Þú ert búin að vera svolítið hissa á lífinu og þú þarft að vita það í hjarta þínu að þetta átti að gerast nákvæmlega svona.

Þú getur aldrei breytt öðrum en þú hefur aflið til að ráða hvernig þér líður í þeim aðstæðum sem koma upp á. Sýndu því fólki sem fer í pirrurnar á þér sérstaka þolinmæði. Andaðu djúpt og byrjaðu þetta haust með krafti.

Þér á eftir að finnast sem svo að þú hafir farið aftur á byrjunarreit með svo ótal margt enda gæti ég skírt þetta haust hjá þér „Back to basics“. Ef þú ert búin að vera með einhverja verki í beinum eða höfði eða hefur bara fundið fyrir almennri leti muntu finna leið út úr þessu ástandi. Og mundu það að skipulag rekur stress í burtu.

Langtímasamband er það sem hentar þér, elsku Vogin mín, svo stress og streita og sífelldar skiptingar í ástarmálum passa þér bara alls ekki. Það er ekki tímabært að neinn fái rauða spjaldið.

Þú munt ekki missa trúna á sjálfa þig, það er aðalatriðið. Það er mjög mikilvægt að vera með alla samninga á hreinu annars lendir þú í rifrildi sem væri mjög vel hægt að sleppa.

Mottó: Ég er búin að fara í gegnum það versta til að fanga það besta.

Frægir í Voginni: Glúmur Baldvinsson stjórnmálafræðingur, Hjalti flugþjónn, Ingi í Sign, Jón Axel Ólafsson athafnamaður, Matt Damon leikari, Íris Berg, fatahönnuðurinn minn, Mary Poppins, Steingrímur Sævarr Ólafsson fjölmiðlaráðgjafi, Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra og sjónvarpskona, Hanna Birna Kristjánsdóttir þingkona, Hildur Sverrisdóttir varaborgarfulltrúi, Ragnhildur Gísladóttir tónlistarmaður, Solla Eiríks á Gló.


Tengdar fréttir

Sporðdreki: Ekkert getur stoppað þig

Elsku Sporðdreki. Það má líkja þér við fuglinn Fönix. Það er alveg sama hvaða erfiðleikum þú lendir í, þú finnur þér alltaf leið út úr þeim.

Hrútur: Láttu heyrast í þér

Elsku aflmikli Hrúturinn minn. Lífið er í raun auðvelt en það erum við sjálf sem flækjum það.

Krabbinn: Hafðu trú á sjálfum þér

Elsku hressi Krabbinn minn. Það er svo mikill kraftur í kortinu þínu að þú verður að nýta þér hann. Það er eins og þú sért að ganga stigann að takmarki þínu og sjáir skýrt hvað þú vilt.

Steingeit: Ekki stjórnast af áliti annarra

Elsku karaktermikla Steingeit. Það þarf að vera myrkur til þess að stjörnurnar sjáist og þú ert búin að hafa regnbogann sem þitt tilfinningalitróf. Það er svo margt sjaldgæft í lífinu, til dæmis ástin.

Nautið: Segðu já við hinu óvænta

Elsku hjartans Nautið mitt. Ekki deyja áður en þú lifir. Þetta ættu að vera einkunnarorðin þín því þú gætir allt eins farið hálfdautt í gegnum lífið ef þú sprengir ekki þægindarammann utan af þér.

Meyjan: Taktu áhættu

Elsku góðhjartaða Meyja. Haustið er þinn tími. Þú skalt nýta þér það að þú ert farin að sjá hvernig þú kemur þér út úr þeim erfiðleikum sem þú hefur áhyggjur af. Þú ert að taka áhættu sem reddast á síðustu stundu.

Vatnsberi: Hafðu gaman af því sem þú gerir

Elsku fallegi Vatnsberi. Mundu að þeir sem haga sér of vel skrifa yfirleitt ekki mannkynssöguna! Og árangur þinn felst ekki í því að hafa allt fullkomið heldur því að hafa gaman af því sem þú gerir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×