Vítahringur Vestursins

Vísir Fastir pennar 26. janúar 2012 06:00
Jón Ormur Halldórsson
Jón Ormur Halldórsson
Jón Ormur Halldórsson skrifar:
Einn ráðgjafa Clintons forseta sagðist áhugalaus um að eyða næstu jarðvist sinni sem forseti Bandaríkjanna. Hann vildi frekar endurfæðast sem skuldabréfamarkaður. Slíkir hefðu valdið, ekki Hvíta húsið. Nú sjá menn máttvana leiðtoga hinna öflugustu ríkja slaga af einum neyðarfundi á annan og bíða þess í angist að markaðir með skuldabréf opni og felli sína dóma. Sarkozy forseti er sagður viss um að stemmingin á skuldabréfamörkuðum muni ráða því hver sigrar þegar fjörutíu milljónir franskra kjósenda velja þjóð sinni leiðtoga í vor. Stefna forsetans í efnahagsmálum hefur líka mótast af þeirri trú hans að einkunnagjöf matsfyrirtækja muni ráða meiru en hugsjónir frönsku þjóðarinnar. Svo er þá komið fyrir fimmta öflugasta ríki heimsins og vöggu uppreisnar hins almenna manns.


Vitringar
Þetta væri kannski sök sér ef matsfyrirtækin hefðu mikla vitringa á sínum snærum. En þetta eru sömu mennirnir og sannfærðu fólk um að Kaupþing væri álíka traustur skuldari og svissneska ríkið. Og töldu að Grikkland væri nærri því eins líklegt til skilvísi og Svíþjóð. Fyrir þá snilld fengu þeir mikla bónusa enda gátu menn þá keppst við að lána gríska ríkinu á lágum vöxtum. Svo voru auðvitað háir bónusar greiddir fyrir þá snilld sem þurfti til að fá fólk eins og íslenska bankamenn og gríska stjórnmálamenn til að taka við peningum á útsöluverði. Fyrir þessum ofurlaunuðu snillingum skjálfa enn öflugustu ríki heimsins.


Trúverðugleikaeinkunn
Nýleg skýrsla Standard & Poor's um Frakkland var ekki eins ævintýralega vitlaus og títt hefur verið um álitsgerðir matsfyrirtækja síðustu árin. Þess í stað var hún samsafn af því sem Danir kalla selvfölgeligheder. Þótt þar væri ekkert að finna sem ekki var þegar þekkt og betur hefur verið útskýrt af ritfærum blaðamönnum var lánshæfismat eins fremsta ríkis heimsins lækkað. Með því var enn aukið á vanda Evrópuríkja. Ætti ekki að vera til trúverðugleikaeinkunn fyrir matsfyrirtæki?


Hvernig í dauðanum…
Stjórnendur stórra vestrænna ríkja hafa af mörgum ástæðum lent í þeirri undarlegu stöðu að liggja andvaka og bíða þess hvernig stemmingin verður hjá strákunum við opnun markaða. Ein er flóðalda af peningum sem myndaðist vegna þeirrar áráttu Asíumanna að leggja fyrir stóran hluta af ört vaxandi tekjum sínum. Önnur er allt ruglið sem vestrænir neytendur og stjórnmálamenn lentu í með þessa auðfengnu og ódýru peninga. Þá þriðju er að finna í misræmi á milli alþjóðlegra markaða og staðbundinna stjórnmála. Þá fjórðu er síðan að finna í vinsældum þeirrar röngu skoðunar að fjármálastarfsemi sé venjulegur atvinnuvegur sem getur vaxið öllum til akks.


Enginn venjulegur bissness
Sú var tíðin að hlutir voru búnir til á Vesturlöndum og seldir um víða veröld. Á þessu hvíldi velmegun þróaðra ríkja. Samkeppni við Asíu reyndist hins vegar erfið þegar sú álfa vaknaði af margslunginni martröð nýlendutímans. Framtíðin lá greinilega í þekkingu og þjónustu. Margir álitu að þar færi fjármálaþjónusta fremst. Þarfir hennar urðu að þyngdarafli í stjórnmálum líkt og áður hafði verið um þarfir iðnaðar í Evrópu eða útvegs á Íslandi. Afreglun sem hún vildi leiddi til þess að fjármálafyrirtæki gátu margfaldað peninga. Kúnstir við margföldun á peningum bjuggu auðvitað til ofsagróða. Hann glapti bæði stjórnvöld og almenning. Þarna virtist komin maskína sem bjó til auð úr stemmingu og stærðfræði. Úr þessu urðu til furðuverk víða um lönd en Íslenska útrásin átti þó líklega metið í kjánaskap og sjálfsblekkingu.


Staðbundið og hnattrænt
Bankarnir hrundu en ríkin stóðu og björguðu því sem bjarga mátti. Þrennt hefur hins vegar komið í veg fyrir að valdið færist aftur frá mörkuðum til ríkja. Eitt er að stjórnmálamenn víða um heim eru sjálfir rúnir trausti, óvíða raunar svo gersamlega eins og á Íslandi þar sem einungis tíundi hver maður treystir víst þjóðþinginu. Annað er að flest ríki Vesturlanda eru svo skuldsett að þau eru ofurseld dyntum lánamarkaða. Mikilvægustu ástæðuna er þó að finna í öllu því misræmi sem fylgir því að fjármálamarkaðir eru alþjóðlegir en pólitískt vald er staðbundið. Ríki hafa enn ekki náð saman um að hemja spilavítiseinkenni fjármálamarkaða sem þó er vel mögulegt með sköttum á viðskipti. Hagsmunir banka eru enn eins og þyngdarafl í stjórnmálum.


Í gryfjunni
Og nú eru menn lentir í gryfju. Allir vita að ríki Vesturlanda þurfa að fara tvær leiðir. Að auka útgjöld og að draga úr þeim. Þetta er erfitt eins og vísindamenn matsfyrirtækis ályktuðu um daginn. Niðurskurður ríkisútgjalda leiðir til samdráttar og þverrandi greiðslugetu. Aukin útgjöld dýpka gryfjuna. Þetta er vítahringur sem mörg vestræn ríki eru að lenda í. Það þarf skýrari sýn til að komast úr þeirri hringiðu en þá að reyna að geðjast mörkuðum frá degi til dags. Einkum þegar markaðir eru ekki ópersónulegir miðlarar upplýsinga, eins og þeir eiga að vera, heldur fyrirbæri sem lúta hvatakerfum og stemmingu manna sem hafa litla þekkingu, þrönga sýn og enga ábyrgðartilfinningu.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 26. maí. 2012 06:00

Bankablús

Viðbúið var að rekið yrði upp margraddað ramakvein þegar Landsbankinn tilkynnti um uppsagn...  

Meira
Fastir pennar 26. maí. 2012 06:00

Á Heimaey betur heima í ríkissjóði?

Ný Heimaey í eigu Ísfélagsins kom fyrir skömmu til heimahafnar í Vestmannaeyjum. Margir hr...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 12:53

Útlendingar og Íslendingar

Stjórnarfar í Kína er ömurlegt. Sérstaklega læt ég ógeðslega ritskoðunartilburði fara í ta...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Raunhæfa planið

Þegar gjaldeyrishöft voru sett á í kjölfar hrunsins töldu flestir þau tímabundna ráðstöfun...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Umsókn um málfrelsi

Fyrir seinustu alþingiskosningar bauð RÚV framboðunum að fá ókeypis kynningartíma í sjónva...  

Meira
Fastir pennar 24. maí. 2012 06:00

Hin "sterka vísindahyggja“

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði athyglisverða grein hér í blaðið í síðust...  

Meira
Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getað farið inn á vefsíður Íbúða...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvæðaveiðigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáæt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftið mýta?

Sæl, Sigga Dögg. Ég las greinina þína um mýtuna um þröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Vítahringur Vestursins