Innlent

Víst snýr Quarashi aftur

Sölvi Blöndal, forsprakki hinnar fornfrægu rappsveitar Quarashi, staðfesti í Kastljósi í kvöld að sveitin hyggi á endurkomu í sumar og að hún muni spila þann 9. júlí. Sveitin mun koma fram á Bestu útihátíðnni á Suðurlandi en endanleg staðsetning liggur ekki fyrir. Vísir greindi raunar frá þessum fyrirætlunum í lok mars en sú frétt var snarlega borin til baka af Sölva í Fréttablaðinu sem sagði hana algjörlega úr lausu lofti gripna. "Maður fer nú ekki að vekja upp þennan dauða hest. Eins vænt og mér þykir um Quarashi þá er þetta ekki að fara að gerast."

En aðdáendur hljómsveitarinnar sem voru farnir að láta sig hlakka til geta semsagt tekið gleði sína á ný, því Quarashi mun sannarlega snúa aftur í sumar. Að sögn Sölva verður aðeins um þessa einu tónleika að ræða og munu allir fyrrverandi meðlimir hljómsveitarinnar taka þátt.

Þetta verður í fyrsta skiptið sem rappararnir Höskuldur Ólafsson, Steinar Fjeldsted, Ómar "Swarez" Hauksson og Egill "Tiny" Thorarensen koma allir saman fram með sveitinni en Egill tók við stöðu Höskuldar árið 2003.

Þessir fimm einstaklingar voru þeir einu sem gátu talist fastir liðsmenn Quarashi en auk þeirra kom fjöldi hljóðfæraleikara við sögu. Ekki hefur verið gengið frá því hvort eða hverjir fleiri komi fram með sveitinni á sviði í þetta skiptið.






Tengdar fréttir

Fer ekki að vekja upp þennan dauða hest

"Þetta er alveg úr lausu lofti gripið," segir Sölvi Blöndal tónlistarmaður. Vísir greindi frá því í gær að hljómsveitin Quarashi væri að íhuga endurkomu í sumar. Sagði í frétt á vefnum að sveitin myndi leika á tónleikum á útihátíð í júlí sem kallast Besta hátíðin.

Quarashi undirbýr endurkomu

Hljómsveitin Quarashi fagnar því í ár að fimmtán ár eru liðin frá því að meðlimir sveitarinnar komu fyrst saman. Vísir hefur heimildir fyrir því að af þessu tilefni muni hljómsveitin vera að íhuga að koma saman að nýju í eitt skipti í sumar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×