Oddný G. Harðardóttir iðnaðarráðherra og Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra.
Oddný G. Harðardóttir og Svandís Svavarsdóttir skrifa:
Fá mál hafa reynt jafn mikið á þjóðina á undanförnum áratugum eins og ágreiningurinn um hvar skuli virkjað og hvar verndað. Bæði sjónarmiðin eiga rétt á sér; landið okkar býr yfir miklum orkuauðlindum sem má umbreyta í uppbyggingu og störf. En það felast ekki síður verðmæti í einstakri og óspilltri náttúru Íslands sem okkur er treyst til að standa vörð um fyrir komandi kynslóðir. Auk þess hefur þeim sjónarmiðum verulega vaxið ásmegin að náttúruvernd sé mikilvægur grundvöllur ferðaþjónustunnar sem vaxandi atvinnugreinar. Í gær var þingsályktunartillaga um Rammaáætlun kynnt en hún verður síðan lögð fram á Alþingi til umfjöllunar og afgreiðslu. Í áætluninni er hugsanlegum virkjunarkostum raðað í orkunýtingarflokk, verndarflokk eða biðflokk og er markmiðið að skapa framtíðarsýn í verndunar- og virkjanamálum og ná almennri sátt í þjóðfélaginu um þennan mikilvæga málaflokk.
Vinna við Rammaáætlun hefur staðið yfir allt frá árinu 1999 en að henni hafa komið fremstu vísindamenn þjóðarinnar á ótal sviðum. Í ágústmánuði sl. voru drög að þingsályktunartillögu lögð fram í 12 vikna opið umsagnar- og samráðsferli þar sem bárust vel yfir 200 umsagnir. Allar umsagnirnar voru metnar og á grundvelli þeirra gerðar breytingar á drögunum sem lögð voru fram til kynningar. Um er að ræða breytingar þar sem svæði eru færð úr nýtingarflokki í biðflokk; annars vegar virkjunarkostir í neðri hluta Þjórsár (Urriðafossvirkjun, Holtavirkjun og Hvammsvirkjun) og hins vegar kostir á hálendinu (Hágönguvirkjanir I og II og Skrokkölduvirkjun).
Í öllum tilvikum eru rökin þau að vegna nýrra upplýsinga sem komu fram í samráðsferlinu beri að rannsaka tiltekna þætti betur áður en endanleg ákvörðun um nýtingu eða vernd verður tekin. Á grundvelli laga nr. 48/2011 um verndar- og orkunýtingaráætlun, eru hér svokölluð varúðarsjónarmið höfð til hliðsjónar; ef um vafa er að ræða þá beri að kanna hann til hlítar áður en endanleg ákvörðun er tekin. Það kemur síðan í hlut nýrrar verkefnisstjórnar rammaáætlunar, sem skipuð verður í kjölfar samþykktar Alþingis, að hrinda í framkvæmd nauðsynlegri rannsóknarvinnu vegna umræddra virkjunarkosta og lögð er áhersla á að tillaga um endanlega flokkun liggi fyrir svo fljótt sem auðið er eftir að nauðsynlegar upplýsingar liggja fyrir.
Þegar ólík sjónarmið takast á ríður á að finna jafnvægi sem breið samstaða getur náðst um. Náttúruverndarsamtök hafa lýst þeim sjónarmiðum sínum að mun fleiri virkjunarkostir eigi að falla í verndarflokk. Og frá þeim sem vilja ganga lengra í orkunýtingu heyrast öndverðar skoðanir.
Rammaáætlun verður rædd á Alþingi á komandi mánuðum og endanlega afgreidd þaðan. Nú sér loks fyrir endann á löngu, flóknu og metnaðarfullu ferli um þetta stóra mál þar sem brýnt er að byggja hvert skref á yfirvegun og málefnalegri afstöðu.
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Margumbeðnar og löngu tímabærar endurbætur á Hverfisgötu hefjast innan tveggja mánaða. Stór hluti götunnar verður lagfærður í tveimur áföngum frá júlí og fram í október: Fyrst frá Vitastíg vestur að F...
Meira
Á vef landlæknisembættisins er að finna marga nafnalista yfir þá sem fengið hafa starfsleyfi í heilbrigðisþjónustu m.a. ljósmæður, lækna, sjúkraþjálfara, sálfræðinga og aðrar stéttir sem starfa í heil...
Meira
Stuttu fyrir Hrunið skrifaði ég pistil í bók og velti fyrir mér hvort það væri tilviljun að skopmyndirnar af Múhameð spámanni hefðu birst í einu stærsta dagblaðinu í Danmörku á sama tíma og Dansk Folk...
Meira
Í vikunni bárust a.m.k tvær jákvæðar fréttir sem tengjast áherslum Íslands í velferðarmálum. Báðar fréttirnar sýna að viðbrögð okkar við hruninu hafi verið félagslega meðvituð og árangursrík á sviði v...
Meira
Framganga SÍ og velferðarráðuneytisins vegna nýrrar lagasetningar og reglugerðar um greiðsluþátttöku SÍ á lyfjum hefur verið ótrúleg, svo ekki sé meira sagt.
Meira
Um þessar mundir er í kynningu tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Landsímareit í Kvosinni í Reykjavík. Samkvæmt henni má reisa hús í Kirkjustræti, á bílastæðinu andspænis hinum gömlu húsum Alþingis
Meira
Það er komið að lokapunktinum hjá nemendum mínum á þessari önn: lokapróf. Ég stend og horfi yfir hópinn á þessa einstaklinga sem ég hef fengið að kynnast eina önn....
Meira
Í síðustu viku átti sá fréttnæmi atburður sér stað að einn frægasti og merkasti stjarneðlisfræðingur nútímans, Stephen Hawking, tók þá pólitísku ákvörðun að sniðganga ráðstefnuna ”The Israeli Pr...
Meira
Undanfarið hefur verið nokkur umfjöllun um náttúruvernd á Reykjanesskaga og er það mjög ánægjulegt. Grindavíkurbær er landmesta sveitarfélagið á Reykjanesi og eru margar af perlum svæðisins innan skip...
Meira
Árið 1992 undirrituðu Íslendingar Ríó-sáttmálann um að sjálfbær þróun yrði höfð í hávegum, rányrkja lögð af og náttúran látin njóta vafans. Undirritun okkar hefur reynst marklaus og ekki pappírsins vi...
Meira
Talið er að tólf hundruð íslenskar konur beri með sér BRCA 2 genastökkbreytingu eins og Angelina Jolie. Hún komst í heimsfréttirnar í fyrradag þegar hún sagði frá því að hún hefði látið fjarlægja bæði...
Meira
Vefjagigt (e. fibromyalgia syndrome) er langvinnur fjölkerfasjúkdómur sem einkennist af útbreiddum stoðkerfisverkjum, þreytu og svefntruflunum. Að auki eru þeir sem þjást af vefjagigt oft með ýmis sta...
Meira
Á síðustu dögum hafa birst í fjölmiðlum greinar frá foreldrum þroskahamlaðra barna varðandi inntökureglur í Klettaskóla, fyrrum Öskjuhlíðarskóla. Í þessum greinum hafa ýmsar fullyrðingar verið settar ...
Meira
Það er gott þegar borgarar þessa lands hafa áhyggjur af því hvernig skattfé er varið. Vegagerðin sinnir hlutverki sínu með hagkvæmni að leiðarljósi og reynir eftir fremsta megni að nýta það fé sem er ...
Meira
Nú er í kynningu nýtt deiliskipulag á dýrmætum reit í hjarta borgarinnar, Landsímareitnum í Kvosinni. Ég skora á fólk að kynna sér það vel og senda inn athugasemdir á skipulag@reykjavik.is fyrir 23.ma...
Meira
Allar ákvarðanir eða ráðstafanir yfirvalda er varða börn skulu byggðar á því sem er börnum fyrir bestu (úr 3. grein Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna). Ég á mér draum. Draum um samfélag sem býður öllum...
Meira
Þórey Vilhjálmsdóttir, framkvæmdastjóri borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins, skrifar drengilega grein í Fréttablaðið þar sem hún rekur jákvæðar einkunnir sem borgarstjórn fær í nýrri úttektarský...
Meira
Þegar ég hugsa um íslensk stjórnmál verður mér oft hugsað til þessa málsháttar. Nú eru kosningar nýafstaðnar og tveir flokkar fengu samtals meirihluta þingmanna. Það er eðlilegt að þessir flokkar hugs...
Meira
Á tímum óstöðugleika í efnahagsmálum verða Norðurlandaríkin að fjárfesta til framtíðar. Þetta er skoðun norræna verkalýðssambandsins (NFS). Samstarfshefð norrænu ríkjanna er traust og nýtur alþjóðlegr...
Meira
Kolbrún Bergþórsdóttir vakti heldur betur upp umræðu á kaffistofum margra landsmanna þegar hún gagnrýndi einlæga aðdáendur Alex Fergusson í grein sinni "Gamall maður hættir í vinnu“ sem birtist ...
Meira
Fram undan eru tímar þar sem leysa þarf úr mikilvægum málum á hinum pólitíska vettvangi og afar brýnt er að það verði gert með þeim hætti að þjóðin fái ekki annan skell í ætt við þann sem hún fékk í o...
Meira