Körfubolti

Virkar vel fyrir Njarðvíkinga að vera með tvo erlenda leikmenn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Dempsey og Atkinson eru að spila vel fyrir Njarðvíkinga.
Dempsey og Atkinson eru að spila vel fyrir Njarðvíkinga.
Njarðvíkingar tefla fram tveimur Bandaríkjamönnum í sínu liði í Dominos-deildinni en þeir Jeremy Atkinson og Myron Dempsey leika með liðinu. Reglurnar í deildinni eru þannig að þeir mega aldrei vera inni á vellinum á sama tíma.

Sérfræðingar í Dominos-körfuboltakvöldinu hafa aldrei haft mikla trú á tveggja Kana kerfi en þetta virðist vera virka frábærlega hjá Njarðvík eins og farið var yfir í Körfuboltakvöldinu á Stöð 2 Sport í gær.

Njarðvíkingar unnu Skallagrímsmenn í síðustu umferð og hefur liðið núna unnið 5 af síðustu sex leikjum liðsins.

Hér að neðan má sjá umræðuna um þessa tvö frábæru leikmenn sem vinna saman sem einn í Njarðvíkurliðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×