Glamour

Vinsælustu Instagram aðgangar stjarnanna

Ritstjórn skrifar
Kim Kardashian er ein af þeim stjörnum sem eru með flesta fylgjendur á Instagram.
Kim Kardashian er ein af þeim stjörnum sem eru með flesta fylgjendur á Instagram. GLAMOUR/GETTY
Samfélagsmiðillinn Instagram hefur birt lista yfir þá einstaklinga sem eru með flesta fylgjendur. Þar er ýmislegt sem að kemur á óvart en annað ekki. Til dæmis eru þrjár Kardashian systur á listanum og Ariana Grande og Taylor Swift eru ofar en Beyoncé. 

Eins og áður hefur verið fjallað um er söngkonan Selena Gomez lang efst með 103 milljónir fylgjenda. Á eftir henni kemur besta vinkona hennar, Taylor Swift, sem er með 93 milljónir. Í þriðja sætinu er það Ariana Grande sem hefur nælt sér í 89 milljónir fylgjenda. 



Hér kemur listinn í heild sinni:

1. Selena Gomez - 103 milljónir

2. Taylor Swift - 93 milljónir

3. Ariana Grande - 89 milljónir 

4. Beyoncé - 88.9 milljónir

5. Kim Kardashian - 87 milljónir

6. Cristiano Ronaldo - 82 milljónir

7. Kylie Jenner - 79 milljónir

8. Dwayne Johnson - 71 milljónir

9. Nicki Minaj - 69 milljónir

10. Kendall Jenner - 68 milljónir

Það vekur athygli að aðeins eru tveir karlar á listanum þetta árið sem segir okkur það að konurnar eru talsvert vinsælli og jafnvel virkari á samfélagsmiðlinum. 






×