Enski boltinn

Villas-Boas hefur engan áhuga á Liverpool

Andre Villas-Boas.
Andre Villas-Boas. vísir/getty
Nafn Andre Villas-Boas hefur komið nokkrum sinnum upp er menn hafa spáð í hver gæti tekið við Liverpool færi svo að Brendan Rodgers yrði rekinn.

Ekki er víst að allir stuðningsmenn Liverpool væru spenntir fyrir því að fá Villas-Boas á Anfield en þeir þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur þar sem þjálfarinn hefur engan áhuga á því að fara þangað.

„Ég hef engan áhuga á starfinu né á því að fara aftur til Englands," sagði þessi fyrrum stjóri Chelsea og Tottenham. Hann er núna þjálfari Zenit í Rússlandi.

Hann yfirgaf Spurs fyrir ári síðan eftir 5-0 tap á heimavelli gegn Liverpool. Hann segist þó ekki hafa verið rekinn.

„Tottenham setti stigamet á sínu fyrsta tímabili undir minni stjórn og við vorum að toppa þann árangur er ég fór. Það var samkomulag af beggja hálfu að ég færi frá félaginu. Ég var ekki rekinn."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×