Enski boltinn

Vill endurgreiða stuðningsmönnum Sunderland

Mannone bugaður eftir leik.
Mannone bugaður eftir leik. vísir/getty
Markvörður Sunderland, Vito Mannone, þurfti að hirða boltann átta sinnum úr markinu um helgina er Southampton niðurlægði Sunderland.

Frammistaða Sunderland í leiknum var til skammar og Mannone veit það vel enda vill hann endurgreiða stuðningsmönnum liðsins sem ferðuðust á leikinn.

„Ég mun persónulega ræða við liðið um hvort menn séu ekki til í að greiða fyrir miðann á leikinn og lestarmiðann fyrir þessa stuðningsmenn," sagði Mannone en um 2.500 stuðningsmenn Sunderland mættu á leikinn.

„Mér finnst að við eigum að greiða þetta fyrir þá. Ég mun gera allt sem ég get svo það verði að veruleika. Við ættum að gera þetta fyrir stuðningsmennina því við lögðum okkur ekki fram í leiknum. Við gáfumst síðan upp og ég þar á meðal."


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×