Vill ákæru fyrir afglöp í starfi 12. apríl 2010 05:30 Guðmundur Gunnarsson
Guðmundur Gunnarsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Álftanesi, vill að ríkissaksóknari taki afstöðu til þess hvort ákæra beri Sigurð Magnússon, fyrrverandi bæjarstjóra, fyrir afglöp í starfi. „Mér er algerlega ofboðið hvert framferði Sigurðar Magnússonar í starfi bæjarstjóra Álftaness frá júní 2006 til október 2009 er með öllu látið átölulaust. Manns sem ber mesta ábyrgð á klárum afglöpum, óvandaðri stjórnsýslu og klúrri meðferð á almannafé á Álftanesi,“ segir í bréfi Guðmundar til ríkissaksóknara. Guðmundur bætir meðal annars við að Sigurður hafi „orðið uppvís að afbrigðilegri hegðun“ og „sýnt af sér fullkomið gáleysi og ábyrgðarleysi“ í starfi. Sigurður segist ekki hafa séð umrætt bréf. „Það er erfitt að gefa komment á það sem maður hefur ekki séð en í sjálfu sér kemur þetta ekki á óvart. Í fjögur ár er hann búinn að gera svipaða hluti og þennan; kæra ákvarðanir mínar til ráðuneytisins og fengið til baka svör um að mín störf hafi verið samkvæmt sveitarstjórnarlögum,“ segir Sigurður. Í komandi bæjarstjórnarkosningum leiðir Sigurður Á-listann. „Það er verið að þyrla upp moldviðri til að koma höggi á mig og ekkert annað. Það tekur enginn hér á Álftanesi mark á Guðmundi Gunnarssyni lengur. Hann hefur ekkert traust – ekki einu sinni hjá sínu fólki sem hafnaði honum í prófkjöri,“ segir Sigurður. - gar
Mest lesið Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Innlent Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Erlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Innlent Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Fleiri fréttir Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda „Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið“ Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Sturlaugur nýr bæjarstjóri Akranessbæjar Evrópumet í verðhækkunum og vígbúnaðarkapphlaup Mál Steinu fer fyrir Hæstarétt Sofandi á akbraut Heitavatnslaust í miðborg í kvöld Enn bólar ekkert á fleiri ákærum vegna netverslunar Framkvæmdir við Hvammsvirkjun í vari út árið Almenningur ekki talinn eiga rétt á upplýsingum um ETS-sérlausn Barn réðst með belti á önnur börn Hæstiréttur hafnar beiðni Elju um að taka fyrir meiðyrðamál Virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar fær grænt ljós Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Ferðum Íslendinga til útlanda fækkar Hvetur almenning til að vera á varðbergi Náttúruminjasafn og Náttúrufræðistofnun renna saman Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Ríkisstjórnin beri ábyrgð á hindrunum Þórkötlu Óviðunandi að ákveðnir hópar barna búi enn við svo mikið úrræðaleysi Nýttu takmarkanir á sjúkraflugi til að þrýsta á borgina Ósáttir Grindvíkingar og undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði að komast á fullt Fleiri andvígir inngöngu í ESB Þorsteinn Ólafsson er látinn Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Sjá meira