Innlent

Vill að dóttir sín skipti um skóla

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Móðir ellefu ára gamallar stelpu, sem fékk ekki að taka þátt í pítsuveislu í Fellaskóla í tilefni öskudags þar sem hún var ekki í mataráskrift í skólanum, segir koma til greina að hún skipti um skóla vegna málsins. Sviðstjóri skóla og frístundasviðs borgarinnar segir skólayfirvöld hafa brugðist rétt við í málinu.

Fréttablaðið greindi frá því í dag að ellefu ára stúlku, Mariu Joao Arantes dos Santos, hefði verið neitað um að taka þátt í pítsuveislu í Fellaskóla. Maria fer alla jafna með nesti í skólann en þar sem pizzuveisla er aðeins einu sinni á ári, á öskudegi, ætlaði hún að fá að kaupa sér sneið fyrir 500 krónur.

„Ég fór til skólastjórans og ég spurði hana. Ég spurði hvort það væri frír matur af því að það er öskudagur og það er pizza og hún sagði nei. Ég spurð þá hvort ég mætti kaupa miða og borða en hún sagði nei, þú mátt það ekki, bara þeir sem eru skráðir í mat. Mér leið mjög illa því mér fannst að hún væri smá leiðinleg. Ég var borðaði ekki hádegismat,“segir Maria. 

Maria segist vona að svona lagað komi ekki fyrir aðra krakka en móðir hennar, Joana Manuela Arantes, vill að hún skipti um skóla vegna málsins.

„Ég er svo hissa því ég hélt kannski að kennarinn þekkti ekki reglurnar og vissi ekki hverju hann ætti að svara En skólastjórinn sagði nei við ellefu ára barn! Hvað er það?,“ segir Joana móðir Mariu.

„Ef ég þarf að skipta um skóla þá ætla ég að skipta um skóla, því mig langar að mér líði vel. Mig langar ekki að skólastjórinn verði svona,“ bætir Maria við.

Fjölmargir hafa gangrýnt málið í dag, meðal annars Dagur B Eggertsson borgarstjóri og Sóley Tómasdóttir forseti borgarstjórnar. 

Skólamáltíð kostar 355 krónur en misjafnt virðist vera á milli skóla hvort sveigjanleiki sé í kerfinu til að borga stakar máltíðir. Helgi Grímsson, sviðstjóri skóla og frístundasviðs borgarinnar, segir skólayfirvöld í Fellaskóla hafa brugðist rétt við í málinu. Maturinn sé útbúinn útfrá fjölda þeirra barna sem eru í mataráskrift, sem eru um 90 prósent. Yfirlýst markmið borgarinnar er þó að engin börn séu svöng í skólanum.

„Það koma reglulega upp svona tilvik þessa daga þegar það er ákveðin dagur eða sérstakur matur. En við erum með ákveðið bókhaldskerfi í borginni sem þarf að fylgja. Þetta flækir málið, þegar það er búið að gera ráð fyrir tilteknum fjölda í mat og kannski hundrað í viðbót vilja. Það er ekki viðbúnaður fyrir því með fyrirvara á greiðslur. Þá flækist málið. Þetta er ekki alveg svona einfalt, að geta brugðist við óskum allra hvenær sem þá langar,“ segir Helgi.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×