Vill 50 milljónir frá SPRON Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 15. mars 2010 18:45 Guðmundur Hauksson.
Kröfur í þrotabú SPRON nema um 250 milljörðum króna. Guðmundur Hauksson, fyrrverandi forstjóri, gerir tæplega fimmtíu milljóna króna launakröfu í þrotabúið. Slitastjórn SPRON mun næstkomandi miðvikudag leggja fram kröfuskrá á fundi með kröfuhöfum. Þar verður þeim gerð grein fyrir afstöðu slitastjórnar til krafnanna. Þær koma víðsvegar að; m.a. frá Lúxemborg, Þýskalandi og Bretlandi. Alls var 211 kröfum lýst í búið og nema þær rúmlega 250 milljörðum króna. Fjórir aðilar lýstu launakröfum í búið upp á tæpar 96 milljónir króna. Guðmundur Hauksson, fyrrverandi forstjóri SPRON, á stærstu kröfuna - tæpar 50 milljónir króna. Slitastjórnin samþykkir að greiða Guðmundi tæpar 47 milljónir. Slitastjórnir gömlu bankanna hafa aftur á móti tekið þá afstöðu að hafna launakröfum allra æðstu yfirmanna. Guðmundur varð forstjóri SPRON árið 1996 og stýrði sjóðnum þar til hann féll í mars í fyrra. Í samtali við fréttastofu sagðist Guðmundur hafa haft rúmar 3 milljónir króna í mánaðarlaun. Ástæðan fyrir launakröfunni væri sú að hann hefði haft 12 mánaða uppsagnarfrest auk þess sem inni í upphæðinni væri uppgjör á orlofi. Til að setja gjaldþrot SPRON í samhengi þá myndu 250 milljarðar duga til að reka Félags- og tryggingarmálaráðuneytið, heilbrigðisráðuneytið og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið allt þetta ár.
Mest lesið Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Heimsins fyrsti billjónamæringur Viðskipti erlent Enn fjölgar aflýsingum Viðskipti innlent Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Viðskipti innlent Sögulegri skráningu SpaceX lokið Viðskipti erlent Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Viðskipti innlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Sjá meira