Vilja þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórn fiskveiða 7. september 2010 14:55 Fiskur. Mynd úr safni.
Ekki ríkti einhugur um skýrsluna sem starfshópur um endurskoðun laga um stjórn fiskveiða gerði og var meðal annars rædd á ríkisstjórnarfundi í dag. Samtök fiskiframleiðenda og útflytjenda (SFÚ) skora á stjórnvöld að leggja þær leiðir sem helst var rætt um í nefndinni, tilboðsleiðina og samningaleiðina, í þjóðaratkvæðagreiðslu til að ná sátt við þjóðina, eiganda auðlindarinnar. LÍU vill hinsvegar fara samningaleiðina samkvæmt yfirlýsingu sem finna má á vefsíðu sambandsins. Í tilkynningu frá SFÚ segir að ef skýrslan er lesin megi sjá að ekki ríkti einhugur um þau atriði sem um var fjallað og ýmis sjónarmið voru uppi. Í bókunum SFÚ við skýrsluna kemur eftirfarandi fram: „SFÚ lýsti þar yfir fullum stuðningi við tilboðsleiðina sem Þorkell Helgason og Jón Steinsson kynntu. SFÚ lagði til að enn frekari athuganir yrðu gerðar á þjóðhagslegum áhrifum beggja leiða. SFÚ ásamt öðrum hagsmunaaðilum lagði til að allur óunninn afli verði seldur á markaði eða markaðsverð á innlendum fiskmörkuðum verði látið ráða í beinum viðskiptum. Sömu aðilar lögðu til að í lög verði sett ákvæði um fjárhagslegan aðskilnað veiða og vinnslu þar sem óheimilt yrði, út frá samkeppnissjónarmiðum, að fénýta aflaheimildir til niðurgreiðslu á hráefni í eigin vinnslur." Yfirlýsing Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍU) er hinsvegar eftirfarandi: „Starfshópur um endurskoðun laga um stjórn fiskveiða hefur nú skilað skýrslu sinni. Í starfshópnum myndaðist breið samstaða um að byggja áfram á aflamarkskerfi og fara svokallaða samningaleið. Sú leið grundvallast á samningum ríkisins og rétthafa aflaheimilda um langtíma afnotarétt og skýrum ákvæðum um framlengingu samninga."
Tengdar fréttir Vilja semja við kvótaeigendur um nýtingarrétt á aflaheimildum Meirihluti sáttanefndar um endurskoðun laga um stjórn fiskveiða leggur til að samið verði við kvótaeigendur um nýtingarrétt á aflaheimildum til ákveðins tíma gegn leigugjaldi. Þetta kemur fram í skýrslu nefndarinnar sem var afhent ráðherra nú í morgun. Þá er einnig lagt til að fiskveiðiauðlindin verði skilgreind sem þjóðareign í stjórnarskrá. 7. september 2010 12:03 Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Innlent Ari þiggur stöðu stjórnarformanns Innlent Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda Innlent Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Innlent Barn réðst með belti á önnur börn Innlent NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ Innlent Fleiri fréttir Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda „Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið“ Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Sturlaugur nýr bæjarstjóri Akranessbæjar Evrópumet í verðhækkunum og vígbúnaðarkapphlaup Mál Steinu fer fyrir Hæstarétt Sofandi á akbraut Heitavatnslaust í miðborg í kvöld Enn bólar ekkert á fleiri ákærum vegna netverslunar Framkvæmdir við Hvammsvirkjun í vari út árið Almenningur ekki talinn eiga rétt á upplýsingum um ETS-sérlausn Barn réðst með belti á önnur börn Hæstiréttur hafnar beiðni Elju um að taka fyrir meiðyrðamál Virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar fær grænt ljós Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Ferðum Íslendinga til útlanda fækkar Hvetur almenning til að vera á varðbergi Náttúruminjasafn og Náttúrufræðistofnun renna saman Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Ríkisstjórnin beri ábyrgð á hindrunum Þórkötlu Óviðunandi að ákveðnir hópar barna búi enn við svo mikið úrræðaleysi Nýttu takmarkanir á sjúkraflugi til að þrýsta á borgina Ósáttir Grindvíkingar og undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði að komast á fullt Fleiri andvígir inngöngu í ESB Sjá meira
Vilja semja við kvótaeigendur um nýtingarrétt á aflaheimildum Meirihluti sáttanefndar um endurskoðun laga um stjórn fiskveiða leggur til að samið verði við kvótaeigendur um nýtingarrétt á aflaheimildum til ákveðins tíma gegn leigugjaldi. Þetta kemur fram í skýrslu nefndarinnar sem var afhent ráðherra nú í morgun. Þá er einnig lagt til að fiskveiðiauðlindin verði skilgreind sem þjóðareign í stjórnarskrá. 7. september 2010 12:03